Kirkjuritið - 01.10.1971, Blaðsíða 40
prentuð var hér heima að öllu á
ábyrgð Hins íslenzka Biblíufélags.
Nú er svo komið, að letursátrin sex-
tugu eru ónothœf til einnar prentunar
í viðbót, og er það raunar ekki að
undra. Þá er sá einn kostur fyrir að
ráðast í nýja setningu textans og
nýja prentun eftir þeirri setningu.
Þetta fyrirtœki kostar œrið fé og fyrir-
höfn. Og þrátt fyrir mikil umsvif í
bókaútgáfu hér á landi, er það því
miður staðreynd, að hér er ekki auð-
velt að fá eins vandaða vinnu að
öllu leyti og krefjast verður í þessu
sambandi. Vér verðum samt að vona,
að þetta verk greiðist vel af höndum
og allt verður gert, sem unnt er, til
þess að svo megi verða. Lagfœringar
á texta Gamla testamentisins eru ráð-
gerðar, enda óhjákvœmilegar. Þœr
verða einkum fólgnar í því að sam-
rœma textann milli útgáfunnar í
stœrra brotinu og því minna, og þá
þannig, að texti minni gerðarinnar
verði ráðandi i höfuðatriðum. Staf-
setning verður fœrð til samrœmis við
gildandi reglur. Um nýja testamentið
er það hins vegar að segja, að end-
urskoðun á þýðingu þess er nokkuð
á veg komin. Hefur verið um það rœtt,
að í hinni nýju prentun komi þau rit
Nýja testamentisins, sem þegar eru
þýdd, þ. e. samstofna guðspjöllin og
Postulasagan og vonandi Jóhannes-
arguðspjall. Vœri þá hœgt í síðari
prentunum að taka aðra samstœða
ritflokka inn, þegar lokið vœri þýð-
ingu á þeim.
Ný prentun Biblíunnar, er miðist
við það, að hin fyrsta biblíuútgáfa,
sem Hið ísl. Biblíufélag stendur fyrir
að öllu leyti í meira en hundrað ár,
38
verði þjóð og kirkju til sóma, er kostn-
aðarsamt fyrirtœki. Styrkur félagsins
er að vísu miklum mun meiri en var
til skamms tíma og kvíði ég því ekki,
að þetta verk verði þvi ofvaxið fjár-
hagslega. En margt fleira en þetta
kallar að. Stuðningur kristins almenn-
ings í landinu við starfsemi félagsins
er ekki eins vakandi og virkur og
vera þyrfti. Ég veit, að félagið hefat
ekki getað kynnt sig sem skyldi. T'l
þess þyrfti það að hafa erindreka,
er gœti ferðast um. Á þetta hef eð
bent á aðalfundum félagsins um áro-
bil. En hér verður ekki allt gert í einu
fremur en endranœr. Margir prestor
hafa verið ötulir og ágœtir erindrekar
félagsins í söfnuðum sínum og þeim
þakka ég af alhug. En betur má °9
mikið má hver, sem vel vill.
Hjálparstofnun kirkjunnar
Hjálparstofnun kirkjunnar hafði 0
síðasta ári um 2.700,00 kr. í tekjon
sem allt er gjafafé. Þar er innifoli^
framlag presta, 1 % af launum, rúm-
ar 200,000 kr. Stofnunin veitti fé t'l
hjálpar í Nígeríu vegna afleiðing0
borgarastyrjaldar, í Perú vegna jató'
skjálfta og í Pakistan vegna flóða,
alls rúm hálf önnur milljón. Þá var
sérstök fjársöfnun vegna holdsveikrC1
og söfnuðust 50.000 kr., sem rá<5'
stafað hefur verið til hjálpar.
Hálfri milljón króna var varið Þ
þess að styrkja islenzka bœndor<
sem urðu fyrir tilfinnanlegustum áföM'
um vegna öskufalls í fyrra. Einmð
hefur stofnunin veitt nokkra hjólp
innanlands í öðrum tilvikum, þar a