Kirkjuritið - 01.10.1971, Blaðsíða 32
í sjón og fasi og sérstceður að allri
gerð enda fór hann ekki troðnar
slóðir að jafnaði. Hann hafði ríkar,
listrœnar hneigðir, var söngelskur og
skóldmœltur, víðlesinn í bókmennt-
um, enda mólamaður góður. Á efri
árum lagði hann sig mjög eftir grísku
og lauk prófi við Háskólann í þeirri
tungu á gamalsaldri. Öllu unni hann,
sem fagurt er, og þó engu meir en
Hindisvík og lífinu þar, á landi og í
sjó. Hann var sóknarbörnum sínum
einlœgur og hjartahlýr og öllum er
hann minnisstœður.
Sr. Sigurður Stefánsson, vígslubiskup,
andaðist 8. maí.
Hann fœddist 10. nóvember 1903,
lauk kandidatsprófi 1928 og fékk
sama ár veitingu fyrir Möðruvöllum
í Hörgárdal frá 1. júní. Prófastur varð
hann í Eyjafjarðarprófastsdœmi frá
1. nóvember 1954 og vígslubiskup
í Hólastifti forna frá 1. júlí 1959.
Hann var formaður Prestafélags
Hólastiftis frá 1958 í áratug og síðan
heiðursforseti þess. Hann fékk lausn
frá prófastsstörfum sakir heilsubrests
árið 1964, frá prestsembœfti 1965,
og vígslubiskupsembœtti sagði hann
lausu frá 1. ágúst 1969. Kona hans,
María Ágústsdóttir, lézt 18. ágúst
1967, 63 ára að aldri. Þau eignuðust
4 börn, sem öll lifa foreldra sína.
Sr. Sigurður var frá fyrstu tíð virtur
mjög í sóknum sínum, svo og í héraði.
Hann var mikilhœfur prestur, hið
bezta máli farinn og raddmaður góð-
ur til söngs og virkur í ýmsum félags-
málum. Embœttisferill hans ber því
vitni, að hann naut mikils álits og
30
tiltrúar af kirkjunnar hálfu. Meðal
þess, sem eftir hann liggur prentað/
kveður mest að bók hans um sr. Jón
skáld Þorláksson. Síðasta áratug ceM 1
sinnar átti hann við þungbœra van-
heilsu að stríða. Sjúkdómsraun sínn
bar hann af frábœru þolgœði.
Sr. Sveinn Víkingur Grímsson and'
aðist 5. júní. Hann var fœddur 1Á
janúar 1896, lauk kandidatsprófi 1
febrúar 1922, vígðist um vorið sem
aðstoðarprestur að Skinnastað en var
tveimur árum síðar settur til Þórodds-
staðar. Var veittur Dvergasteinn 1926
og þjónaði þar unz hann var ráðinn
biskupsritari 1942. Því starfi gegnd'
hann til vors 1959. Eftirlifandi konö
hans er Sigurveig Gunnarsdóttir °9
eiga þau fjögur börn.
Sr. Sveinn Víkingur var fjölhcefur
gáfumaður, ritfœr með ágœtum, snja^
rœðumaður og fyrirlesari og skáld'
mœltur vel. Hann var einnig verk'
hygginn og velvirkur skrifstofumaðor-
Hann var afkastamikill til ritstarfa-
einkum eftir að hann lét af embcetti-
Meðan hann gegndi starfi biskup5j
ritara viðaði hann að sér mi klu efn'
um íslenzka kirkjustaði og vann síð'
an að umfangsmiklu ritverki um þa^
efni. Honum auðnaðist að leggja síð'
ustu hönd á það verk. Er það nú fuli'
búið til prentunar og útgáfa þesS
ráðin. Þar er saman tekið hið helzrö
sem heimildir geyma um kirkjur °9
kirkjustaði hér á landi og verður mik'
ill fengur að þessu stóra riti, þegaí
út kemur, og mun það jafnan þykiö
hið gagnlegasta og fróðlegasta heim'
ildarrit.
A