Kirkjuritið - 01.10.1971, Blaðsíða 73
esú-hreyfingin nólgast
1 ustu vikur berast fregnir frá Norð-
^ öndum, sem benda til þess, að
'n rnikla og undarlega bylgja frá
. H^ríku, Jesú- byltingin eða hreyf-
ln9ir>, muni brátt hafa áhrif hér ncer
°Ss- Amerískur hópur, fyrrverandi
, i3Par °g eiturlyfjaneyfendur, voru
?, í Svíþjóð fyrir skömmu og
J5ru þaðan til Lundúna. í Svíþjóð
v° tu þeir mikla athygli. Margir hafa
ttazt þessa hreyfingu, talið, að hún
S^ti varla verið heilbrigð. Allar
frei
að
sVnd
9nir benda til þess, að hér sé um
rœða fólk, sem snúið hefur frá
_ sinni og vesöld til frelsis fyrir
^esúm Krist. Boðskapur þess byggist
ltningunni og eigin trúarreynslu.
rQsagnir þess af lœkningum eitur-
lyfjaneytenda eru kraftaverkasögur á
20. öld.
Vér undrumst, en þetta er ekki í
fyrsta skipti, sem Guð útvelur hið
smáa og fyrirlitna til þess að brjóta
ríki sínu braut. Ungur prestur, sem
verið hafði eiturlyfjaneytandi, er leið-
togi hópsins, er heimsótti Svía. Eftir
honum hefur dagblað m. a. þessi um-
mœli: ,,Guðs orð er hið bezta lœkn-
ingalyf. Þess vegna leggjum við mikla
áherzlu á að lesa og biðja. Þegar
einstaklingar hafa fengið hjálp með
þeim hœtti um skeið, hvetjum við
þá til að fá sér vinnu, ganga í hjóna-
band og lifa eðlilegu lífi í samfélag-
inu. Þúsundir ungs fólks hafa hlotið
hjálp til þess að sœttast við sam-
félagið. Kœrleikur Jesú er lausnin á
eiturlyfjavandamálinu."
A0 PREDIKA NÚ Á DÖGUM
□ Með því að boða Krist, krossfestan og upprisinn Drottin, verður
Guð veruleiki fyrir mönnum hér og nú. Predikarinn getur ekki
komið þessum fundi við Guð fil leiðar, hann getur aðeins pred-
ikað í þeirri trú, að sá fundur eigi sér stað, ef hann boðar. Þetfa
er trú, sem einkennir predikarann, án hennar er hann enginn
predikari.
D Það er eitthvað bogið við það, ef maður er eitt í predikunar-
stólnum og annað á stéttinni. Hann er þá alls ekki hann sjálfur
á báðum stöðum, og líkur eru á því, að hann sé ekki hann
sjálfur í predikunarstólnum. Þar er hann að leika hlutverk. Hann
er leikari og sennilega leiðinlegur leikari, en leikari samt. Þá
skortir predikunina vald. Hún gceti þó verið athyglisverð, og
e. t. v. vakið undrun, en hana skortir vald. Vald (authority) er
aðeins fyrir hendi, þegar predikarinn er hann sjálfur.
Úr bók D. W. Cleverley Ford. Sjá bls. 74.
71