Kirkjuritið - 01.10.1971, Blaðsíða 70
Vakning þessi hefir verið það sterk,
að hún hefir breytt mörgum ungum
manni úr alvarlega höldnum eitur-
lyfjaneytanda í kristinn mann algjör-
lega lausan við slíka neyzlu. Einn
heroinneytandi sagði: „Það, sem
hvorki lögregla, fangelsi, lœknar né
heilsuhceli gátu gert gjörði Jesús.
Hann frelsaði mig." Frásögn yngsta
sonar James A. Pike, biskups, er
eftirtektarverð. (Pike biskup var nokk-
uð þekktur hér á landi a. m. k. meðal
guðfrœðinga. Til hans hefir verið
vitnað. Hann varð að segja af sér
biskupsembœtti í Biskupakirkjunni í
Bandaríkjunum vegna hinnar nei-
kvœðu afstöðu sinnar til trúar kirkj-
unnar. Á síðustu œviárum hneigðist
hann mjög að spíritisma. Hann fórst
i eyðimörk f Austurlöndum fyrir
fáum árum.) Þessi sonur biskupsins,
Christopher Pike að nafni og 21 árs
gamall neytti marijuana og tengdi
þetta látlausu glápi á sjónvarpið ,,TV
og grasið var minn guð", sagði hann.
,,Dag nokkurn sá ég Ted Wise tala í
Sproul Plaza í Berkeley. Hann var
fyrsti gáfaði kristni maðurinn, sem
ég sá." Nokkru síðar gaf Christopher
Pike sig Kristi á vald. ,,Ég sagði
aðeins: Jesús Kristur ég œtla að fela
mig þér á hendur og engum öðrum.
Ekkert gerðist, en ég vissi, ég vissi,
að hann hafði náð tökum á mér, og
ég var frelsaður. Hinn gamli Chris
Pike er ekki framar til, ég er ný
sköpun." Afturhvarf margra virðist
vera með líkum hœtti og Chris Pikes,
hœgfara en að lokum öruggt frem-
ur en það verði skyndilegt.
Trúarvakningin hefir einnig ein-
kenni einingar kirknanna, eins og
68
tœpt var á að framan. Hún hefir
náð til Gyðinga, rómversk-katólskra,
og mótmœlenda úr ýmsum kirkju-
deildum. Þeir sœkja stundum guð'
þjónustur og messur hver hjá öðrum-
Rómversk-katólskur forstöðumaður
leikmanna hreyfingar þeirra segir;
,,Við erum allir brœður í samfélag-
inu við Krist."
Eins og allar trúarvakningar a
þessi við sína erfiðleika að etja. Ýms-
ir, sem vakningin nœr tökum á hverfa
á braut síðar. Eitt er það atriði í trúar-
boðuninni, siðferðilegs eðlis, sem
mikil áherzla er lögð á. Það er höfn-
un á kynferðisafskiptum fyrir giftingu-
Samkoma, sem haldin var fyrir stúd-
enta í Stanford University leystist ncer
upp, er einn þeirra, sem talaði
sagði, að þeir (stúdentarnir) yrðu a^
forðast samfarir þar til þeir giftu sig-
Þetta er það atriði, sem erfiðast er
að fást við og fólk vill sízt láta cif-
Menn sjá líka nokkra hœttu fólgna
í því, er unglingarnir taka að vitna
! Biblíuna án þess að skynja til fulln-
ustu það, sem um rœðir. En hvað um
það, allir, sem augun hafa opin sja
hinn mikla kraft þessarar vakningar'
skynja þorstann eftir Guði og löngun
til að fara eftir vilja hans, finna
greinilega þann einlœga vilja, a^
Biblían verði opin bók. Menn sjá a9
í þessari hreyfingu endurnýjun hinm
ar hefðbundnu kirkju. Margir prestor
starfa með þessari hreyfingu eða eru
í nánum tengslum við hana og surn-
ir þeirra segjast hafa öðlast lifcmd'
trú fyrir tengsl sín við vakninguna-
Þá er mikið sagt. Allir þeir, sem
kynnzt hafa vakningunni sjá, að aðal'
atriðið er trúin á Jesúm Krist, sem
Á