Kirkjuritið - 01.10.1971, Page 42

Kirkjuritið - 01.10.1971, Page 42
innan, svo að skólastarf geti hafizt haustið 1972. Uppdrcettina hafa gert arkitektarnir Þorvaldur Þorvaldsson og Manfreð Vilhjálmsson, en yfir- smiður er Guðmundur Sveinsson, Sel- fossi. Reynir Vilhjálmsson, garðaarki- tekt, hefur verið til ráðuneytis um skipulag. Prestssetrið nýja í Skálholti er nú nœr fullbúið, en hús það, sem presturinn hefur haft til afnota hingað til að miklu leyti, verður fyrst um sinn skólastjórabústaður og til annarra nota fyrir skólann. Áœtlaður kostn- aður við að koma skólahúsunum und- ir þak er 9,5 millj. króna. Það fé er að miklu leyti handbœrt vegna örlœt- is norrœnna vina skólans. íslenzkt gjafafé er lítið í samanburði við þetta, þótt málið eigi innlenda vini, sem hafa stutt það með höfðingleg- um gjöfum. En þeir eru of fáir. Verð- ur bœði innlent gjafafé og opinber stuðningur að koma til að verulegu marki, til þess að unnt verði að stýra þessari framkvœmd í höfn greiðlega. Vil ég heita á alla, bœði presta og aðra, að gefa því gaum og liðsinni. í frumvarpi því til nýrra frœðslulaga, sem lagt var fyrir alþingi i vetur, er gert ráð fyrir því, að ríkið veiti skól- um, sem eru utan hins lögbundna skólakerfis, styrk, er nemi 50 af hundraði kostnaðar. Er tekið fram, að hér séu lýðskólar hafðir í huga einkum. Sr. Heimir Steinsson, ráðinn skóla- stjóri, hefur nú starfað sem kennari í 2 vetur við einn fremsta lýðháskóla Danmerkur, auk þess dvalizt í Svíþjóð og Finnlandi í námserindum, og 1 vetur er fyrirhugað, að hann dveljist i Noregi um tíma, til enn frekari und- irbúnings. Jafnframt byggingaframkvœmdurn verður í sumar hafizt handa um hita- veitu í Skálholti. Mun höfðinglegf framlag eins aðila gera það fjárhags' lega kleift, en ekki vill sá gefandi láta sín getið opinberlega að svo búnu. í sambandi við það mál, sem vér höfum til umrœðu hér á þessad prestastefnu, eru ríkar vonir bundnar við Skálholtsskóla. Vér vœntum þess, að þaðan komi menn, sem hafi um lífsviðhorf, áhuga og þekkingu mót- azt á þann veg, að þeir verði virkk kirkjunnar menn á hinum ýmsu svið- um þjóðl ífsins, og sérstaklega þess fallnir, að gegna leiðtogastörf- um á sviði œskulýðsmála. Ég lýk máli mínu. Starfsár er kvatt og nýju heilsað. Verkefnin eru mörg og stór. Stöndum saman um þau og gleðjumst saman yfir hverju átaki °g aflraun. En að baki hins marga er hið eina. Gjöfin eina, sem vér höfu^ þegið, köllunin, sem gjöfin felur 1 sér, verkið eina í eigin sál og í allrl athöfn. Þetta er verk Guðs, að þer trúið á þann, sem hann sendi, segir Jesús Kristur, (Jóh. 6). Með þau °rð í huga skulum vér ganga til starfa nú og œvinlega. Prestastefnan 1971 er sett. 40

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.