Jörð - 01.08.1931, Page 8

Jörð - 01.08.1931, Page 8
6 TRÚIN í JESÚ NAFNI [Jörð Trúin í Jesú nafni. DÁSAMLEGUR er veruleikinn, sem eftirfarandi hugleiðing á um að fjalla, en vandasamt að skýra hann. Er svo um allt líf. Það er því aðeins öðrum þræðinum, að vér höi’mum það, að hugleiðingin verður ærið ófullkomin að því, er snertir skýrleik framsetningar. Væri hún mjög skýr, þætti oss grunsamlegt, að vér værum ekki að fást við líf og því síður lífið; heldur við svikula eftirlíking — kerfi eða eitthvað þess háttar. Hins vegar er þess ekki að dyljast, að óskýrleiki sá, er vér teljum víst, að framsetning vor verði undir orpin, gerir grein þessa erfiðari aflestrar; gerum því ráð fyrir að verða misskildir af einum og öðrum hér og hvar. Má og vera, að endurtekningar, er virðast kynnu óþarfar, geri framsetninguna sumum leiðinlega. Hörmum vér það að vísu, en við það verður að sitja. Vér játum, að vér höfum hér færst í fang viðfangsefni, sem er alveg á tak- mörkum hæfileika vorra — en vér höfum gert það af innri þörf; finnum til þess sem knýjandi skyldu að sýna. öðrum, þó að ekki verði nema »sem í skuggsjá og óljósri mynd« dásemd þess, er vér höfum sjálfir litið augliti .til auglitis í huga vorum og samvizku með mikilli gleði og nokkurri endurnýjun kraftanna. Oss dettur ekki í hug, að vér höfum »fundið Ameríku«; en göngum þess heldur ekki duldir, að hér er um að ræða viðhorf kristinnar trú- ar, sem ekki hefir verið almennt mikill gaumur gefinn — og er þó ósegjanlega mikils um vert — og tímabært. S K I F T A má allri trú í tvær deildir: náttúriega og guðnekilega.—Margur lesandi kann nú að hugsa: Núdám- ar mér ekki; hvað ætli mig varði um guðfræðilegar hár- toganir! Sannleikurinn er nú samt sá, að hugsandi mað- ur, sem fylgjast vill með tíma sínum (í beztu merkingu þess orðtaks), kemst naumast hjá að gera sér nokkura heimspekilega eða guðfræðilega (eða hvað menn vilja nefna það) grein fyrir lífs- og heimsskoðun sinni. — Vís- indin virðast oft fitl eitt við dauða bókstafi, einskisverð-

x

Jörð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jörð
https://timarit.is/publication/466

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.