Jörð - 01.08.1931, Blaðsíða 14
12
LÍKAMSRÆKT
[Jörð
Líkamsrækt.
i.
FORFEÐUR vorir iðkuðu líkamsrækt almennt.
Þeir voru kunnáttumenn á því sviði og náðu miklum ár-
angri. Vafalaust má telja, að Skarphéðinn hafi í raun og
veru stokkið »12 álna langt« eða þar um bil á ísi á Mark-
arfljóti. Ekki mun heldur ástæða til að efast um, að
Helga jarlsdóttir, — sem að vísu var af gauzku bergi
brotin, — hafi synt til lands úr Geirshólma með minni
son sinn á bakinu, en sonur hennar hinn eldri hafi bjarg-
að sér sjálfur hina sömu vegarlengd.
HellevxM' (Forngrikkir) eru þó taldir að hafa verið for-
feðrum vorum enn þá snjallari í líkamsrækt. Eru og
gleggri heimildir til um þá, þar sem eru hin goðfögru
mannlíkön, er þeir hjuggu og surfu í marmara og varð-
veizt hafa að meira og minna leyti fram á þenna dag. Er
af líkömum þessum ljóst, hvílíkur hefir verið vöxtur
hinna gervilegustu manna með Hellenum, kvenna sem
karla. Fer varla tvennum sögum af því, að Hellenar liafi
lcennt mannkyninu, hvað líkamsfegurð sé. En sjálfir öðl-
uðust þeir þehlcingu á því, við að rsehta líhami sina i sam-
ræmi við náttúnma, svo sem þeir vissu hezt; rækta nátt-
úruna sjálfa af vandlátri alúð, afbrýðisfullri elsku, en
varast að brjóta á móti lögmálum hennar. Vegna slíkrar
ræktarsemi við mikilsverð lífslögmál, urðu þeim opinber-
aðar fyrirmyndir í líkamsfegurð og hreysti — af hinum
eina, er þekkti — Móður Náttúru sjálfri, er framleiddi
pær í lifandi mönnum. Standa síðan allar aldir í ómetan-
legri þakkarskuld við líkamsræktarmenn Hellena sem og
við listamenn þeirra, er festu myndir hinnar lifandi op-
inberunar í tiltölulega varanlegt efni.
LÍKAMSRÆKT hefir þrjú markmið: heil-
b ri g ði, hr ey sti, f e g ur ð. Vér teljum ekki ástæðu
til, að svo stöddu, að lýsa dásemdum eiginleika þessara,
enda munu þær liggja hverjum manni meira og minna í