Jörð - 01.08.1931, Blaðsíða 57
ÚTSÝN KRISTINS NÚTÍMAMANNS
55
Jörð]
jvku hina hlutkennéu hlið menningarinnar. Því tel ég nú-
lifandi kynslóð sæla um fram þær kynslóðir fyrri og
seinni, sem á undan eru gengnar. Hugsið yður, áheyrend-
ur mínir, — reynið að hugsa yður, að þér og börn yðar
eigið eftir að lifa að sínu leyti eins miklar framfarir í
andlegu og félagslegu lífi manna og orðið hafa í verkleg-
um og nautnalegum efnum síðastliðna hálfa öld. Þér
hristið höfuðið í huganum, vantrúaðir á slíkt ofurmagn
blessunarinnar! En — þetta verður að gerast, bræður
góðir, — svo víst sem sannur er málshátturinn: Vandi
fylgir vegsemd hverri — og hann er sannur. Mannkyn,
sem öðlast hefir slíkar ódæma framfarir í verklegri og
nautnalegri menningu á, til þess að gera, örskömmum
tíma — það verður að taka geysilegum framförum, og
það fljótt, í andlegum og félagslegum efnum einnig —
eigi það ekki að missa valdið á öllum hinum fullkomnu
tækjum sínum, félagslegum sem verklegum, til starfs og
nautnar — og drápa innbyrðis. Drápstækin verður að
viðurkenna jafnt á borði sem í orði að séu með öllu van-
heilög og réttlaus. Verður að leggja þau gersamlega nið-
ur og þar með allan félagslegan viðbúnað, sem við styrj-
aldir og þessháttar er tengdur. En tækin, félagsleg sem
verkleg, til starfs og nautnar að setja algerlega undir
stjórn hinna andlegu lögmála mannlegs félagsskapar sem
einkalífs. Þetta er hið undursamlega hlutverk nútímans,
sem ætti að geta fyllt hann lofsöng og leik, starfsgleði og
ábyrgðartilfinning, er bæri langt af þvi, sem almenning-
ur hefir áður tekið þátt i. — Jesús Kristur lifði að vísu
í holdi meðal kynslóðar, sem var uppi fyrir 19 öldum. En
sú kynslóð vissi ekki af honum — ekki nándanærri þús-
undasti hluti þeirrar kynslóðar vissi af honum. Nú er sá
tími upprunninn, að svo að segja allt mannkynið veit af
honum og fagnaðarerindi hans; auðvitað sérstaklega all-
ur almenningur í »kristnu« löndunum, — jafnframt því
sem hin vísindalega þekking hefir gerbreytt lifnaðarhátt-
um almennings, tækifærum hans, þekkingu og skoðunar-
hætti á róttækan og víðtækan hátt. Þess vegna er það nú-
tíminn, sem boðið er tækifærið mikla að þekkja Krist öll-