Jörð - 01.08.1931, Blaðsíða 78
76
ANDREA DELFÍN
[Jörð
orðinn kátur aftur. Ég heyrði hann blístra, um leið og
hann hvarf fyrir hornið. Svo leið ár. En hvað skeður!
Lögreglan lét spyrjast fyrir um hann; enginn frá Múranó
má fara til útlanda í atvinnuskyni, svo að þeir þar læri
ekki listina. Mér var sagt að skrifa honum að koma heim
samstundis, en fyrirgera lífi sínu ella. Iíann hló nú að
því bréfi; en höfðingjarnir í stjórnarráðinu voru ekki að
gera að gamni sínu. Enn góðan veðurdag, bráðsnemma,
vorum við telpan mín sóttar upp úr rúmunum og dregnar
upp undir blýþökin, en mér sagt að skrifa honum, hvar
við værum og að þar yrðum við að dúsa, þangað til hann
kæmi. Og nú stóð ekki á svari hans: að hann kæmi á hæla
bréfinu. Nú vænti ég hans á hverjum degi, en vikur og
mánuðir liðu; mér varð allt af sárara í hjarta og höfði,
— því að þar er vítishiti, herra Andrea. Það hélt mér
uppi, að ég hafði barnið, sem ekki hafði verulegan skiln-
ing á því, sem fram fór, nema því, að hún fékk vondan
mat, og að hitinn var kveljandi á daginn. Samt söng hún,
til að hafa mig í góðu skapi, svo að ég varð að kvelja mig
til, að hafa hemil á tárunum. Á þriðja mánuði vorum við
loks látnar lausar, og þá borin sú saga, að glerblástrar-
maðurinn Orsó Daníellí hefði dáið í Mílanó*) úr hitasótt.
Ég hefi heyrt þetta fullyrt síðar; en sá sem leggur trún-
að á það, þekkir ekki höfðingjaráðið hérna. Dáinn! Eins
og maður deyi, þegar bjarga skal konu og barni úr blý-
herbergjunum!«
»Hvað álítið þér þá, að orðið hafi um mann yðar?«
spurði aðkomumaður. Hún leit á hann með því augnaráði,
að honum duldist ekki, að hún hafði í raun og veru gist
undir blýþökunum vikum saman. »Það er ekki með
felldu«, svaraði hún. »Margur er dauður og gengur aftur,
en líka er margur lifandi, og kemur þó ekki aftur. En
höfum ekki hátt um það. Hver getur ábyrgzt mér, að þér
stökkvið ekki með það í lögregluna, ef að ég segi yður
álit mitt. Þér hafið útlit til að vera sómamaður; — en
hver er ráðvandur nú á dögum? Einn af þúsundi; einn af
*) Stórborg- á Norður-Italíu (Langbarðalandi).