Jörð - 01.08.1931, Blaðsíða 87
Jörð]
ÍSLAND í FARARBRODDI
85
ingarþjóðum til fordæmis. Gín þú ekki við erlendum kerf-
um, hvort heldur eru trúarleg, heimspekileg, stjórnar-
farsleg, hagfræðisleg né nein önnur, er nöfnum tjáir
nefna. Skapaðu sjálf af eigin hugboði, þó að þú gangir
sízt fram hjá reynslu annara. Þér á að vera það ljóst, að
auðvaldsandinn hefir þegar leitt ógæfu yfir þjóðirnar og
stefnir með þær í glötun, fari svo fram, sem horfir. En
ekki skaltu vænta þér úrlausnar í kerfi Marx, né neinu
öðru kerfi — nema því, er lífið sjálft skapar á hverri líð-
andi stund. Enda er Marxtrúin grundvölluð á efnishyggju
og ofbeldis-, eins og auðvaldið. / eig in b r j ó sti er
framtíðarinnar að leita------og Jesús Kristur er vegur-
inn þangað inn, — hann hinn sanni maður. Haldir þú
fast við innri rödd þína, leitir þú lærdóms í eigin eðli,
umhverfi og sögu í nafni hans, hins óttalausa — þá
muntu vissulega verða í fai’arbroddi meðal þjóðanna,
friðflytjandi á jörð.
Listamenn.
Eftir Pétur Sigurðsson.
1. SÖNGVARINN.
Syng þú hátt,
syng þú um eilífan, guðlegan mátt,
syng þú um liðna og líðandi stund,
lífið og kvik þess í forsjónar mund,
ljósríki kvöldsins og komandi dag,
kærleikans almætti, hátíðar lag;
dýrð þá, sem kemur og dýrð þá, sem er,
dýrð þá, sem var og er minnisstæð þér;
feðranna dyggðir og frægðgullnu spor,
fölnuðu blómin og komandi vor,
Guðs ríkis morgun og guðveldislýð,
guðsfriðar sælu og afnumin stríð.