Jörð - 01.08.1931, Side 24

Jörð - 01.08.1931, Side 24
22 í GAMLA DAGA [Jörð góma — hvar væri nú sjórinn — ekki þyrfti austurstrog- ið, þegar engu væri að ausa — nú væri af, að sjá hann brattan. Formaðurinn tók öllum málum vel og kvað þeir myndu brátt komast í hann krappann og gott að taka á grautarfyllinni — myndi þá betur endast hangiketsbeit- an. Var þá rutt leifum af borði og bornar inn brennivíns- flöskur og staup þau, er til voru, en bollar þar, sem staup vantaði. Urðu þá margir um að heimta bollana, en þeir voru settir, þar sem formaður vísaði til. Glumdi nú stof- an öll í glaum og gleði. Kveðlingar, söngur og skellihlátr- ar blandaðist hvað við annað. Hver flaska tæmdist á svipstundu og bættist óðara ný við. Þessu gekk svo nokkra stund, unz kaffi var borið inn og lummur, ríflega útilátnar; fylgdi þar með, að nú kom formaðurinn með rommflösku og hellti út í kaffið hjá hverjum einum. Meðan á kaffinu stóð, snerust umræður að alvarlegum efnum. Formaðurinn hóf þær með því að segja hverjum háseta, hvernig sér hefði líkað við hann yfir vertíðina. Var þá gefið gott hljóð, allir vildu heyra, hvað sagt var um hvern einn. Var það næsta misjafnt, en allt sagt með hógværum orðum — stundum með spaugsyrðum. Þegar formaður hafði komið sér af, settist hann meðal háseta og var sjálfsagt, að nú fengi hann orðstír sinn að heyra. Var þá rifjuð upp öll vertíðin, og hvernig tekizt hafði í það og það skifti. Mátti þá mörg hetjuleg orð heyra og hreystileg — þegar ýmsir sögðu frá handtökum sínum og snarræði í vondum sjó og brimi. Aftur mátti heyra ýmsa eldri menn lofa handleiðslu Guðs og dásemdir — hvernig hann hefði afstýrt hættunni og leitt þá aðdáanlega. Settu þeir ofan í við formanninn fyrir dirfsku hans og djarf- tækni, að róa út í vondan sjó og sitja of lengi. En aðrir dáðust að slíku; að lokunum kæmi um síðir, og þá væri nægur hvíldartími, sögðu þeir. Vigfús hét maður; hann bjó á Sólheimum og var alla tið frammámaður hjá Guð- mundi, og meðal duglegustu háseta hans. í hrófveizlunni var hann og hinn duglegasti; komust fáir til jafnsviðhann í drykkju og gamanyrðum. Hann glímdi manna bezt, og þýddi fáum að leita á hann. í þessari veizlu komst hann

x

Jörð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/466

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.