Jörð - 01.08.1931, Side 32

Jörð - 01.08.1931, Side 32
30 TíDÆGRA [Jörð sinni var við Alessandró, er hann kom í námunda við hann. Alessandró var enn á unga aldri, vel vaxinn og fríður sýnum og jafnframt manna kurteisastur og viðfeldnast- ur í viðmóti, enda leyndi það sér ekki, að ábótinn varð hrifinn af honum; kallaði hann hann til sín og gaf sig á tal við hann; spurði hann hver hann væri, hvaðan hann kæmi og hvert hann ætlaði. Alessandró leysti greiðlega úr 'því öllu og lýsti yfir því, að hann væri reiðubúinn til að gera honum hvern þann greiða, sem hann væri umkom- inn, en að vísu- væri ekki af miklu að láta. Þegar ábótinn heyrði skýra og góðgjarnlega ræðu hans, leizt honum enn betur á hann og hugsaði með sjálfum sér, að þrátt fyrir lítilmótlegt starf, þá hlyti hann að vera maður kynbor- inn; og fullur meðaumkunar með honum vegna mótlætis þess, er hann hafði ratað í, hughreysti hann hann með hlýlegum orðum; fullvissaði hann um, að Guð myndi bæta honum allt og fram yfir það, ef að hann viki ekki af vegi di*engskapar. Lauk hann máli sínu með því að bjóða hon- um að vera áfram samferða, með því að þeir ættu leið saman. Þakkaði Alessandró ábótanum vinsemd hans og bað hann hiklaust nota sér hverja liðsemd, sem hann gæti af honum haft. Er þeir höfðu ferðast þannig nokkura daga, vildi það til að þeir komu ásamt fylgdarliði ábótans í lítinn kaup- stað, þar sem fátt var um gististaði. En með því að ábót- inn vildi endilega lenda þar, þá fór Alessandró með hann í lítið gistihús, er hann var kunnugur, og lét búa um hann í skársta herberginu í húsinu. Var Alessandró, sem var þaulvanur ferðalangur, þá þegar orðinn nokkurs konar yfirráðsmaður hjá ábótanum, og kom hann nú fylgdar- liði hans fyrir í nágrenninu, eftir því sem bezt varð við komið. Þegar ábótinn hafði snætt kvöldverð og komið var fram á rauða nótt, enda allir gengnir til náða, spurði Alessandró gestgjafann hvar hann ætlaði sjálfum honum rúm. »Svei mér ef ég veit«, anzaði gestgjafinn. »Sjálfur veiztu, að öll rúm eru skipuð, og að ég verð ásamt fólki

x

Jörð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/466

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.