Jörð - 01.08.1931, Side 39

Jörð - 01.08.1931, Side 39
Jörð] DAVIÐ STEFÁNSSON FRÁ FAGRASKÓGI 37 án hans er engin hetja glæst; án hans fær enginn draumur rætzt«. Skyldi íslenzku skáldí nokkuru sinni hafa verið lögð einfaldari og helgari orð á tungu? Vér þekkjum aftur æskuvin vorn, Davíð, í hinum fullþroskaða manni: lát- lausan, sannan, sundurgerðarlausan í dýrustu ljóðum sín- um — í ætt við guðspjöllin. Nú herðir hörpusláttinn. Spámaðurinn er í eyðimörk- inni; innan stundar talar hann til lýðsins »Sá sem lífi lifir lýtur Guði einum«. »Verst að öllu illu er að vera blauður; leita ei neins og látast iifa, en vera dauður«. (»Vegamót«). ....Og nú kemur stormurinn, sterkviðrið mikla, sem lesandinn hefir fundið á sér að væri í aðsigi síðan seint í kvæðinu um Hrærek. Seinni hluti kvæðisins »Vegamót« var ótviræður undanfari þess — og þó er lesandinn sem þrumulostinn, þá er hann hefir lesið »Andvarp«. — Ýms- ir þeirra, er ritað hafa um »Ný kvæði« og að ýmsu vel, hafa »slegið sig til riddara á því« að hnýta í »Andvarp« og önnur kvæði bókarinnar af líkum anda, þó að þeir nefni ekki nöfn nema þá helzt kvæðið um Neró. Virðist þeim allt mjög á sömu bókina lært: »Andvarp«, »InnreiÖ Jesú«, »Neró« o. s. frv. Þeir tala um, að Davíð njóti sín ekki, þegar hann »rífi sig þannig upp úr öllu valdi«; gefa fyllilega í skyn, að þessi stórfeldu kvæði (»Neró« hefir í rauninni sérstöðu) séu glamurkennd og hálfgerð látalæti. Getur varla heitið, að sést hafi eitt einasta viðurkenning- ar-, skilningsljómandi orð um hin stórfenglegu kvæði »Andvarp« og »Innreið Jesú«. Eru þá kvæðin í raun og veru of stór fyrir íslendinga? Trúin á þjóðina kveinkar sér við að játa það. Eða á að skilja þetta sem andæfing einstakra manna, er orðið hafa fyrir þeim óþægindum að mæta augum spámanns, — sem ekki er »tilbúinn, heldur reglulegur næturgali« (sbr. ævintýri H. C. Andersens)?

x

Jörð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/466

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.