Jörð - 01.08.1931, Side 100

Jörð - 01.08.1931, Side 100
BÓKMENNTANÝJUNG. NÝ BRAUT í ÞJÓÐFRÆÐUM. VESTIR-SKAríAFELLSSÝSLA og íbúar hennar. Drög til lýsingar á íslenzku þjóðlífi mótuðu af skaffc- fellskri náttúru, sett fram í ritgerðum af 40 fulltrúum skaftfellskrar alþýðu. BJÖRN O. BJÖRNSSON bjó undir prentun og gaf út. Vegna jþess að bók þessi er ekki til sölu hjá bóksölum, er enn unnt að fá hana keypta, þó að upplagið hafi verið mjög tak- markað. Er að sumu leyti að líta á hana sem skaftfellskt minn- ingarrit í tilefni alþingishátíðarinnar, en að öðru leyti sem upp- hafsbók í nýrri tegund bókmennta og þjóðfræða. Sýnir náttúru landsins, útilíf þjóðarinnar og mál það, sem alþýðan notar raunverulega um þessi efni — auðlegð íslenzkrar tungu. Bókin er um 250 bls. á stærð í 4to broti (stjórnartíðindabrot), öll á myndapappír; myndimar um 60, sumar heilsíða og lit- prentaðar; bóídnni fylgir vandaður sýsluuppdráttur, gerður sérstaklega hennar vegna; er og fleiru sérstaklega til kostað, að bókin sómi sér vel sem hátíðlegt nainningarrit. Söluupplag var aðeins rúm 500 eintöle og verður bókin ekki endurprentuð. Bókin er til sölu bæði heft og í bandi. Verð: 15 kr. heft; 20 kr. í bandi. Bókin fæst á skrifstofu Isafoldarprent- smiðju h.f., Reykjavík, og verður send þaðan hvert á land sem vill gegn póstkröfu á kostnað kaupanda. Er hér að rœða um bók, sem getur orðið fd- gœt og vaxið verulega að verðmœti, bókasafns- lega sem peningalega, innan langs tíma. Ummæli málsmetandi manna, utan sýslu sem innan: Dr. Bjami Sæniundsson (í einkabréfi til útg.): ». Gaman væri að eiga slíka bók um allar sýslur landsins. hefi haft óblandaða ánægju af ýmsum köflum, sömdum á ómengaðri og hispurslausri Skaftfellsku. Það eru líka í henni ýmsar góðar upplýsingar náttúrufræðilegs efnis. Ritið er hið skemmtileg- asta og yður Vestur-Skaftfellingum til sóma«. Sira Magnús Bjarnarson, prófastur á Prestsbakka; Skaft- fellingur og því nákunnugur efninu (í einkabréfi til útg.): 2-Bókin er prýðilega úr garði gerð og þér og sýslubúum til sóma«. Prentmeistari (í einlcabréfi til útg.): >Ég er hræddur um, að bðkin sé allt of Ó D Ý R<t.

x

Jörð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jörð
https://timarit.is/publication/466

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.