Prestafélagsritið - 01.01.1921, Qupperneq 152
Prestafélagsritið.
Guðsríki er nálægt.
147
bezta og dýpsta í kaþólskunni renni þar saman í eitt við
frjálsan anda evangeliskrar trúar. — Ótal straumbrot birt-
ast, og bera þau hvert á sinn hátt vott um líf og mátt
boðskaparins, að guðsriki sé nálægt. Eg ætla aðeins að
drepa á tvær höfuðstefnur, sem mér virðist mest koma
til og hafa einkum dregið að sér athygli mína. Þær eru
skyldar að vísu, en þó ólíkar að sumu leyti. Þýzkaland
er vagga annarar, en Sviþjóð hinnar, að því leyti sem
hún er ekki runnin frá henni. Andi »nýguðfræðinnar«
þýzku er einlæg viðleitni í þá átt, að leiða mennina aftur
að uppspreítu kristindómsins og hreinsa burt rofið, sem
hlaðist hefir um hana. Hún vill losa trúna við alt dautt
verðmæti, svifta því frá, sem skyggir á Jesú og fagnaðar-
boðskap hans. Þangað skulu mennirnir hverfa á ný,
óháðir trúarlærdómunum, frjálsir að öllu, engu bundnir
nema guði, í Jesú og samvizku sjálfra sin. Að sönnu
hefir rannsóknarstarfið valdið allmiklu losi á trúarhug-
myndunum og vakið efasemdir og sársauka, en þegar
komist er gegnum eldinn, mun þessi viðleitni verða til að
greiða guðsríkinu veg í mannshjörtunum. Og jafnvel nú
eru slík áhrif tekin að koma skýrt i ljós og breiðast út
meðal fjöldans. Ný hreyfing er hafin á Þýzkalandi rétt
fyrir stríðið og stendur unga kynslóðin nálega ein að
henni. Hún hefir fylt æskuria djörfung og eldmóði, og
nær fastari og fastari tökum á mönnum. Vor er i Iofti*
og hressandi hvassviðri. Eins og við má búast, er bylt-
ingahugurinn mikill, og kirkjuleg verður þessi stefna
naumast talin. Margt gamalt á að falla og ytra formið
að breytast og umsteypast. En þótt fulllangt kunni að
vera gengið í ýmsu, þá er markmiðið engu að siður það
eitt, að stefna sem næst Kristi og frumkristninni, verða
lærisveinar hans á eins líkan hátt og auðið er lærisvein-
unum fyrstu. í Sviþjóð gætir aftur meir, eins og í sumum
öðrum löndum, andlegra hreyfinga í þá átt, að gefa nýtt
gildi arfi kristninnar, sem safnast hefir um aldirnar síðan
daga Jesú hér á jörðu. Það eru ekki aðeins orð hans,