Sjómannadagsblaðið - 01.06.1989, Page 4
2
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Sjómannadagsblaðið
kemur út á Sjómannadaginn ár hvert
og er sent í pósti til áskrifenda.
Áskrift í síma (91)-38465.
Verð kr. 350,00,-
ÚTGEFANDI:
Sjómannadagsráð
Hrafnistu DAS Laugarási,
104 Reykjavík.
RITSTJÓRAR:
Garðar Þorsteinsson ábm.
Ásgeir Jakobsson.
RITNEFND:
Garðar Þorsteinsson,
Ólafur K. Björnsson,
Ólafur Þór Ragnarsson.
SETNIN G/PRENTVINNSL A:
Prentstofa G. Benediktsonar hf.
ER ÞJÓÐIN AÐ KJAPTA SIG í HEL?
Fyrir ýmsum þjóðum gengur á víxl að vandræðum linnir og vandræði
aukast, en ein er sú þjóð, sem alla sína tíð hefur lifað við uppstyttulítil
vandræði, og það átti bara vel við hana. Svo var það einn daginn, að
það horfði svo til að vandræðum væri að linna, en sá sem uppalinn er í vandræð-
um, kann ekki lagið á því að lifa vandræðalaust. Það kom á daginn að það ástand
átti ekki við þjóðina, og það skildi allur almenningur, að ekki sé talað um
ráðamennina, að vandræðaglæp sinn mátti þjóðin ekki missa. Almenn samstaða
náðist um að steypa sér snarla og af tvíefldum krafti út í vandræði á ný. En þá var
komið að því, sem þjóðin var einnig vönust, og það var að bjarga sér úr vandræð-
um. En nú var sú kynslóð uppi sem ekki vildi nýta hefðbundnar aðferðir og láta
verkin tala, heldur skyldi tungan leysa vandræðin, og þaríhugvitið, og orðafram-
leiðsla og talaði hver sem betur gat fleyg baráttu- og hugvitsorð út í bláinn.
Vandræði þjóðarinnar eru svo sem engin lífshætta, en hver veit þó, hvað af
getur hlotizt, þegar skipstjórnarmennirnir hafa gleymt, að þeir eru í brúnni til að
stjórna þjóðarskútunni og halda, að þeir séu þar til að láta mynda sig eða rabba við
hásetana. Það getur orðið strand. Þeir leggja orðið nótt við dag í kjaptaganginum
og farnir að sjá ofsjónir og halda það sker, sem ekki þurfti nema beygja fyrir,
leggja lítið eitt á stýrið og sigla um stund með gát, vera fjallgarð nýrisinn úr sæ og
svo sýnist, sem þeir ætli sér að fljúga yfir hann á vængjum hins talaða orðs, og er
það nú skárra en það sem er, að þeir gefa upp nýja stefnu daglega og snúa stýrinu
borð í borð á ferðlausu skipinu, skrúfan ekki í sambandi, þeir kúpluðu frá, áður en
þeir fóru að stýra. Það hafa aldrei dugað þessari þjóð, þegar alda er á móti og
þungt að draga, neinar rellur eða hrærivélar og kjaptakvarnir þá ekki heldur.
Þótt kjaptakvörnin sé ekki íslensk aflvélauppfinning, eins og hugvitsmenn
halda, þá gæti það trúlega kallazt ný uppfinning hjá Sjómannadagsblaðinu að
horfa nú til himins og láta sem það heyri ekki orðaþytinn í loftinu umhverfis það,
og leita uppi andlegrar spektarmenn, Forsetann, páfann og biskupa og segja síðan
sögur af frönskum skútum fyrir framliðna, það er hvort eð er eina fólkið, sem má
vera að því að hlusta fyrir kjaptagangi í sjálfu sér og hefur þrauthugsað sitt
bjargráð: til jarðar komi það ekki aftur.
Ásgeir Jakobsson
FULLTRÚARÁÐ SJÓMANNADAGSINS 1989
í Reykjavík og Hafnarfírði
Stjórn Sjómannadagsins 1989: Sjómannafélag Reykjavíkur: Skipstjórafélag íslands:
Formaður: Pétur Sigurðsson Pétur Sigurðsson Ásgeir Sigurðsson
Ritari: Guðmundur Ibsen Bjöm Pálsson Arnór Gíslason
Gjaldkeri: Þórhallur Hálfdánarson Guðmundur Hallvarðsson
Meðstjórnendur: Erling Guðmundsson Félag ísl. loftskeytamanna:
Guðmundur Hallvarðsson Jónas Garðarsson Sigurður Tómasson
Daníel Guðmundsson Skjöldur Þorgrímsson Ólafur K. Bjömsson
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan: Guðmundur Ibsen Sigurður Óskarsson Stýrimannafélag ísiands: Guðlaugur Gíslason Hálfdán Henrysson Sjómannafélag Hafnarfjarðar: Kristján Jónsson Ólafur Ólafsson
Skipstjóra- og stýrimannaféiagið Kári: Matsveinafélag íslands:
Vélstjórafélag íslands: Þórhallur Hálfdánarson Einar Jóhannesson
Jón Guðmundsson Daníel Guðmundsson Láms Grímsson Magnús Guðmundsson
Sveinn Jónsson Skipstjóra- og stýrimannafélagið Ægir: Félag Bryta:
Aðalsteinn Gíslason Einar Thoroddsen Rafn Sigurðsson
Karl Magnússon Kári Halldórsson