Eimreiðin - 01.01.1932, Blaðsíða 28
16
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
ElMREIÐlN'
□ km. íbúatala Nýfundnalands er 260.000, og á Labrador
eru 4200 íbúar (þar af 1000 Eskimóar). Höfuðborgin á Ný-
fundnalandi heitir St. Johns.
Englendingar höfðu lengi gefið fjármálaóreiðu Nýfundna-
lands ilt auga, en látið þó kyrt liggja, þangað til nú nýlega-
Nýfundnalandsstjórn skorti orðið rekstursfé til þess að geta
- .... haldið opinberum fyrirtækjum í gangi. Reyndi
og1 bjargráðin. hún fyrst að útve9a la" erlendis til þess að
reyna með því að hylja kviksyndið, en hún
gat hvergi fengið það lán, sem hún þurfti. í júlí 1931
greip stjórnin til ýmsra neyðarráðstafana til að minka
gjöldin. Laun embættismanna voru lækkuð, og jafnframt
neyddist stjórnin til að fá brezkan fjármálasérfræðing ser
til hjálpar og að taka erlendan fjársýslumann til þess að
koma nýju skipulagi á járnbrautarrekstur, póstmálin og önnur
opinber fyrirtæki. Forsætisráðherra landsins, Richard SquireS;.
tilkynti opinberlega, að stjórnin hefði valið brezka fjármála-
sérfræðinginn Sir Percy Thomson til að hafa eftirlit með fjár-
málunum, þar með talin fjárhagsáætlunin svo og ríkisskuld-
irnar, og að Mr. Magor frá Montreal hefði verið valinn fram-
kvæmdastjóri. Eftir að Mr. Magor tók við framkvæmdastjóra-
störfum í Nýfundnalandi lét hann meðal annars loka 300
póst- og símastöðvum í Iandinu, sem hann taldi ekki eiga
neinn rétt á sér. En skýrsla Sir Percy Thomsons um fiar'
hagsástandið leiddi til þess, að öll fjármálastjórn landsins
hefur nú verið fengin í hendur viðskiftafræðingi þeim, sem
áður var nefndur, og gerð algerlega ópólitísk. Eru taldai
góðar horfur á, að J. H. Penson muni geta bjargað Nýfundna-
landi frá gjaldþroti og rétt við fjárhaginn, en að það mum
kosta miklar fórnir. Hefur komist til tals að Nýfundnalands-
menn seldu Kanadamönnum Labrador, sem er skóg- og málm-
auðugt land. Þar er bæði járn og gull í jörðu. Nýfundna-
landsstjórn vill fá 100.000.000 dollara fyrir skikann. Stjórni**
í Kanada hefur viðurkent opinberlega, að hún ætti kost á að
fá landið keypt fyrir þetta verð, en hefur ekki enn sem
komið er séð sér fært að taka tilboðinu.