Eimreiðin - 01.01.1932, Blaðsíða 114
102
KREUTZER-SÓNATAN
eimreidin
varð sennan að taka, og lífið gekk sinn vanagang eins og
áður.
Slíkar og þvílíkar sennur sem þessi komu fyrir hvað eftir
annað, ýmist með mánaðar eða viku millibili, eða jafnvel dag
eftir dag. Alt af var sama sagan endurtekin. Einu sinni var
svo langt komið, að ég var búinn að útvega mér vegabréf til
útlanda. Sennan hafði þá staðið yfir í tvo daga samfleytt. En
við sættumst ennþá einusinni að nafninu til, og ég sat kyr.
XXI.
Þannig var ástandið, þegar þessi maður — Truchatschévski
hét hann — kom til sögunnar. Hann var nýkominn til Moskva
og hafði víst talið það viðeigandi að heimsækja mig senl
fyrst eftir komu sína til borgarinnar. Þótt hann kæmi snemma
morguns, tók ég samt á móti honum. Við höfðum eitt sinn
þúast, og ég veitti því undir eins athygli, hve hann sóttist
eftir að við þúuðumst áfram, því hann notaði í fyrstu ým's|
>þú« eða »þér«. En þegar ég ávarpaði hann jafnan með ÞV1
að þéra hann, hætti hann fljótt öllum tilraunum til að halda
þúinu.
Mér geðjaðist undir eins mjög illa að manninum. En Pa°
undarlega skeði, að í stað þess að taka honum þurlega oS
koma honum sem fyrst af mér, þá var eins og eitthvert or
lagavald tæki í taumana og kæmi mér til að sýna honuni
vinsemd. Eðlilegast var, að ég hefði talað við hann fáein orð>
kastað svo á hann kuldalegri kveðju og látið hann fara, an
þess að kynna hann fyrir konunni minni. En það fór ÖðrU
vísi! Eins og af ásettu ráði fór ég að tala um tónlistarstör
hans og sagðist hafa heyrt, að hann væri búinn að leSS!a
fiðluna á hilluna. Hann tók því fjarri og sagðist aldrei ha a
iðkað fiðluleik af meira kappi en einmitt nú. Hann minti w'S
þá um leið á, að ég hefði eift sinn leikið á hljóðfseri- $
sagðist nú vera hættur því fyrir fult og alt, en að konan m>n
spilaði aftur á móti ágætlega. ,
Þetta var mjög undarlegt. Frá því fyrsta að við mættum
þarna, var hugur minn gagnvart honum eins og jafnan si
eftir að ólánið steðjaði að, og þótt ég hefði vitað j3”}
hvað fram átti að koma, hefði afstaða mín til hans a re