Eimreiðin - 01.01.1932, Blaðsíða 24
12
VIÐ ÞJOÐVEGINN
EIMREIÐIN
sérstakri vöruskrá ný-útkominni. Er þetta hið þarfasta verk og
f , á skilið óskiftan stuðning allra landsmanna. Það
Islenzka
vikan a að Se^a sÝni> að ^er >nnanlands eru fram'
leiddar miklu fleiri vörutegundir en almenningi er
kunnugt. Vöruskráin synir, að íslenzkur iðnaður er fjölbreytt-
ari en menn hafa gert sér í hugarlund. Við flytjum inn fyrif
hundruð þúsunda árlega vörur, sem eru framleiddar í landinu
sjálfu eða sem hægt er að framleiða innanlands. Þýðing
þessarar fyrstu »íslenzku viku« er fyrst og fremst sú, að sýna
mönnum fram á þetta.
Af málum þeim, sem enn hafa komið fyrir þetta yfirstand-
andi þing, hefur frumvarp sjálfstæðis- og jafnaðarmanna um
breytingar á stjórnarskránni mesta athygl1
■skipunaTmálið. val<ið- Tliiö9ur Sjálfstæðisflokksins í kjör-
dæmaskipunarmálinu eru nú kunnar orðnar
um alt land. Jafnaðarmenn hafa að allmiklu leyti getað orðið
sjálfstæðismönnum samferða í málinu, en Framsóknarflokkurinn
hefur ekki getað fallist á verulegar breylingar. Á tillögum sjálf-
stæðismanna eru tveir höfuðgallar. Hinn fyrri er sá, að ekki
er ætlast til að tala þingmanna verði fastákveðin með Iögum.
heldur verði hún hreyfanleg. Getur því þingmönnum fjölgað
frá því sem nú er, í stað þess að þeim ætti að fækka. Hinn
síðari er sá, að með hinu nýja fyrirkomulagi virðist flokka-
okið reyrt enn fastar að almenningi, svo að utanflokkamönnum
verður enn erfiðara en áður að neyta kosninga- og kjörgengis-
réttar síns. Hvorttveggja þetta er þess eðlis, að vel má baeta
úr, án þess að raskist nokkuð að ráði meginhugsun tilIögU'
manna: að láta kosningaréttinn koma sem jafnast niður an
tillits til þess, hvar á landinu kjósandinn á heima.
Annað mál, sem vakið hefur mikla athygli síðan þing kom
saman, er hið svonefnda Útvegsbankamál og í sambandi við
það nýútkominn ritlingur eftir einn af fyrverandi
bankamálið bankastjórum íslandsbanka, hr. Sigurð Eggerz>
er hann nefnir »Bréf um bankamálin o. fl.‘ Nú
í febrúar hefur þingið samþykt því nær með samhljóða at-
kvæðum, að ríkið taki ábyrgð á innstæðum manna í Útvegs-
bankanum. Eins og menn muna, var þessu fyrir tveim árum
neitað ákveðið af tveim flokkum þingsins, er íslandsbanki átti