Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1970, Page 20

Eimreiðin - 01.05.1970, Page 20
84 EIMREIÐIN anna og einstaka lög eru úr ka- þólska kirkjusöngnum, eins og hann tíðkaðist fyrir siðaskiptin. Sálmalög til safnaðarsöngs á ís- landi voru prentuð í sálmabók og grallara Guðbrands Þorláks- sonar biskups, og studdist bann þar við erlendar bækur. Þessar tvær kirkjusöngsbækur, sálrna- bókin og grallarinn, voru gefnar út aftur og aftur — með nokkr- um breytingum þó — í um það bil tvær aldir, og kom síðasti grallarinn út árið 1779. í sálma- bók Magnúsar Stephensen 1801 var sálmunum breytt mjög frá því sem áður var, en í bókinni voru aðeins prentuð þrjú lög og leið fram yfir miðja 19. öld áður en ný kirkjusöngsbók var gefin út. Á þessu tímabili varð þjóðin í enn ríkara mæli en áður að læra sálmalögin eftir eyranu, mann fram af manni. En árið 1861 gaf Pétur Guðjohnsen út íslenzka sálmasöngsbók og tók bann sálmalögin sumpart úr gömlu kirkjusöngsbókunum og að nokkru leyti úr erlendum sam- tíma sálmabókum. F.ldri lögun- um breytti hann nokkuð, enda var það ríkjandi stefna erlendis um það leyti að færa lögin í held- ur nýlegri búning, t.d. voru mörg lög, sem áður voru í hinum svo- nefndu kirkjutóntegundum sett í dúr eða moll. Þessi lögbreiddust smám saman út og voru almennt kölluð nýju lögin til aðgreining- ar frá gömlu lögunum svo nefndu, en það voru sálmalögin eins og þau voru þá orðin í með- förum fólksins. Gömlu lögin, sem skráð voru eftir fólki í lok 19. aldar og hljóðrituð á þess- ari öld, eru mörg gjörólík lög- unum í prentuðum sálmasöngs- bókum frá 18. öld. Það má vitaskuld deila um það, hvort rétt sé að kalla gömlu sálmalögin þjóðlög, en í þeim ætti einmitt að mega heyra ein- hver þau einkenni sem talizt geta íslenzk. Þar má gera samanburð á útlenda laginu, gerðum þess í íslenzkum bókum og loks þeim breytingum og flúri sem koma fram í munnlegri geymd. í sum- um nágrannalöndum okkar hef- ur mönnum smám saman orðið ljóst, að sálmalög voru sungin þar mjög frábrugðið því sem á bókum stóð og höfðu tekið á sig svip þjóðlaga. Þannig var þessu háttað á Norðurlöndum og sums staðar á Bretlandseyjum, eink- um á Suðureyjum. Það er því ákaflega forvitnilegt að kynna sér í hverju breytingarnar eru fólgnar á hverjum stað.“ — Var ekki nýju lögunum misjafnlega tekið? „Jú, þau mættu sums staðar mótspyrnu og þótti skorta hátíð- leik og viðhöfn gömlu laganna. Sumir héldu áfram að syngja gömlu lögin heima fyrir, þótt nýju lögin væru sungin í kirkj-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.