Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 71

Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 71
GUNNAR E. FINNBOGASON eigin kennslu og ræða um starfið við aðra. Þessi stuðningur við einstaka kennara getur farið fram í hóp eða tveir og tveir kennarar vinna saman. Mikilvægt er að kennarastarfið verði sýnilegra, þannig að starf og aðferðir kennara verði aðgengilegri fyrir foreldra og aðra sem áhuga hafa. SAMKEPPNI MILLI SKÓLA Til þess að bæta skólakerfið í anda markaðshyggjunnar og gera það skilvirkara þarf að koma til samkeppni milli skóla um fjármagn og nemendur. Það eru nemend- urnir sem draga að fjármagnið. Þegar nemandi færist á milli námstiga á hann að geta valið milli skóla. Þetta þýðir að skólar þurfa að kynna starfsemi sína og námstilboð. Til að þetta gangi upp þurfa skólarnir að sjá hag sinn í því að laða að nemendur. I samkeppniskerfi vilja skólarnir fá sem flesta duglega nemendur og þá sem hafa sem minnstan kostnað í för með sér. Hvað verður um þá getuminni í slíku kerfi? Þeir sem gjarnan vilja breyta skólanum í þessa veru tala oft urn breytt rekstrarform. Skólinn verði ekki rekinn af ríkinu heldur verði hann hlutafélag eða sjálfseignarstofnun. I Frumvarpi til laga um listmenntun á háskólastigi (1994:3) kemur fram sú hugmynd að gera fyrirhugaðan Listaháskóla að sjálfseignarstofnun og með slíku rekstrarformi er talið að ná megi eftirtöldum markmiðum: að veita aukið sjálfstæði íkennslu, stjórnun og rekstri, að auka gæði, hagkvæmni og skilvirkni í rekstri stofnunarinnar, að í rekstri stofnunarinnar fari saman ábyrgð og ákvörðunarvald stjórnenda, að stofnunin hafi frjálsar hendur við próun list- menntunar og nýtingu hinna bestu starfskrafta á pví sviði, að stofnunin fái svig- rúm til pess að halda eftir eigin tekjum, styrkjum og óráðstöfuðum fjárveitingum til uppbyggingar, hagræðingar og próunar á eigin starfsemi, að hvetja til virkrar pátttöku einstaklinga og fyrirtækja t starfsemi stofnunarinnar. Fram kemur í sama frumvarpi að eftirlit ríkisvaldsins með starfsemi skólans verði í formi gæðakrafna þar sem honum verði settur gæðastaðall og sóst verði eftir alþjóðlegri vottun. Þeir sem hafa viljað ganga lengst í einkavæðingu skólastofnana telja að leggja eigi niður ríkisskóla sem ekki tekst að laða að sér nemendur og segja starfsfólkinu upp. Hér á að gilda hið sama eins og þegar einkafyrirtæki fer á hausinn vegna skorts á viðskiptavinum. Ekki vilja allir ganga svona langt og telja að nýta eigi öll pláss sem til boða standa en láta eftirspurnina í einstaka skóla ráða vali á nemendum. Ekki er að finna slíkar einkavæðingarhugmyndir í frumvarpinu um Listaháskóla. I sambandi við inntöku í eftirsótta skóla, hvort sem þeir eru einkaskólar eða ríkisreknir, stingur Söderström (1987) upp á því að haldin séu uppboð á þeim pláss- um sem laus séu. Þeir foreldrar og nemendur, sem geta boðið mest, fái þessi lausu pláss. Hann bendir einnig á aðra leið sem ef til vill er raunhæfari, en það er að draga um þessi pláss í stað þess að bjóða þau upp. Þeir skólar, sem ekki eru hátt skrifaðir á vinsældarlistanum, fá að gjalda þess. Þessir skólar koma til með að fá nemendur sem gjarnan vildu vera í öðrum skólum 69
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.