Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 82

Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 82
GÆÐAMAT í HÁSKÓLASTARFI jafnvel deilur í fjölmiðlum um atriði sem fjölþjóðleg reynsla hefur þegar skorið fyllilega úr um. Enda þótt fræðslustarfsemin hafi vissulega áhrif á framvindu samfélagsins er hún þó í grundvallaratriðum þjónustustarfsemi við samfélagið utan dyra skólanna sjálfra. Af sjálfu leiðir að aukning, þróun og vöxtur háskólastigs og háskólafræðslu er liður víðtækrar atburðarásar og afleiðing margra þátta. Hér verður ekki fjallað ítarlega um samfélagslegt hlutverk skólanna en látið nægja að minna á þá mikil- vægu staðreynd að fræðslustarfsemin er undirstöðuatvinnuvegur tækni- og upp- lýsingasamfélagsins. Islendingar eiga enn eftir að draga brýna lærdóma af þessari staðreynd. Við stefnumótun sína mætir fræðslustofnun alveg sérstökum vandamálum sem tengjast eðli hennar og hlutverkum, og á það ekki síst við ef hún er markaðinum háð í rekstrarákvörðunum. A síðari árum hafa rannsóknarniðurstöður og ný við- horf komið fram sem varpa nýju ljósi á margvíslega þætti í fræðslustarfseminni. Menn eru farnir að meta hana með mælistikum sem áður var aðeins beitt á almenn atvinnufyrirtæki. I þessu efni hafa gæðamat og gæðastjórnun sérstöðu. Ekki skiptir það þá minnstu máli að gæðaviðhorfunum fylgir nýr hugsunarháttur og nýtt mat á eigin störfum og hlutverki fræðslustofnana, fyrirtækja, stjórnenda og starfsmanna. Samkvæmt hugsunarhætti gæðastjórnunar kemur gagnrýni og sjálfsgagnrýni, nýbreytni og tilraunaviðleitni í stað fyrri virðuleika og stöðugleika, fyrirskipana og valdboðs. Og gæðaviðhorfunum fylgir jafnan sú vitund að nota beri og viðurkenna gagnrýni, umsögn og álit óháðra utanaðkomandi aðilja. Með gæðaviðhorfunum hættum „ég" eða „við" að ákveða „sjálfur" eða „sjálf" allt sem starfið snertir en viðurkennum óskir og kröfur, væntingar og mat annarra óháðra aðilja sem úrslita- vald um starf og stefnu. Þessir óháðu aðiljar eru viðtakendur þjónustunnar, „þeg- arnir" eða í þessu tilviki „fræðslumarkaðurinn" (Bank 1992:15,112-117, Runólfur S. Steinþórsson 1993:13, 33). Fræðslustofnanir verða þannig að vega og meta allt starf sitt eftir stöðugri þarfagreiningu með tilliti til viðtökuaðiljanna, markaðarins. Við- horf gæðamats og gæðastjórnunar eru þannig bein vefenging hefðbundinnar stjórn- unar evrópskra fræðslustofnana og leiða til algerrar endurmótunar í þeim efnum. SKILGREININGAREFNI Astæða er til að vekja athygli á nokkrum helstu vandamálum og skilgreiningar- efnum sem fræðslustofnanir mæta þegar gæðamat stendur fyrir dyrum (Barnett 1992:56,112-113,149, Fágerlind 1992, Hoy og Miskel 1987:386-420). Fyrst skal nefnt að til þess að gæðamat geti átt sér stað verður að svara spurn- ingunni um það hverju eða hverjum fræðslustofnunin á að þjóna. Á hún í reynd aðallega að þjóna eigin stjórnendum eða starfsmönnum, ríkinu eða þjóðfélaginu, menningunni, háleitum hugsjónum eða jafnvel guði, lítilmagnanum eða afburða- mönnunum, eða e.t.v. skólanefndinni, vinnuveitendum eða námsfólkinu? Þekkt markmið í þessum skilningi eru t.d. „vísindalegur sannleikur", „öflun vísindalegrar þekkingar", „óendanleg sannleiksleit", „miðlun fagþekkingar", jafnvel „ad maior- em Dei gloriam" (guði til dýrðar). 80
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.