Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 118

Uppeldi og menntun - 01.01.1996, Page 118
 KYNFERÐI, JAFNRÉTTI OG ÞROSKI BARNA brigðilega. Einnig getur alhæfingin leitt til staðlaðrar ímyndar um drengi í heild og orðið þeim fyrirmynd um það hvernig þeir eigi að hegða sér til að vera „stráka- legir" eða jafnvel leitt til þess að drengir sem hópur fái að gjalda fyrirferðarinnar sem nokkurs konar persónugervingar fyrir misrétti kynjanna (sjá Ragnhildi Bjarna- dóttur 1992:46-49). Hér er ekki verið að halda því fram að órólegu drengirnir eigi að fá að valda truflunum óáreittir. Mikilvægt er að þeir fái skýr skilaboð - sem einstaklingar - um að hegðun þeirra sé ekki viðurkennd í skólasamfélaginu eða leitað sé með öðrum hætti leiða til að koma í veg fyrir að aðrir nemendur gjaldi hegðunar þeirra. Einnig er nauðsynlegt að hafa í huga að yfirgangur nokkurra drengja getur gefið bæði drengjum og stúlkum þau skilaboð að það séu þeir sem hafi völdin, og að þeim leyfist - í krafti kynferðisins - að kúga aðra. í umræðu um jafnrétti og skólastarf beindist athyglin lengi vel einkum að stúlk- um, enda þótti full þörf á að efla sjálfsvirðingu þeirra og kenna þeim að bera höfuðið hátt sem stúlkur og konur. A seinni árum hefur áherslan á Norðurlöndum beinst bæði að stúlkum og drengjum. Enn þykir þörf á að styrkja stúlkurnar og sannfæra þær um að þær séu ekki „veika kynið" eða af óæðra kyni en drengirnir. En dreng- imir em ekki síður en stúlkurnar taldir gjalda misréttis í samfélaginu. Þeir eru fórn- arlömb kynbundinna fordóma og staðlaðra fyrirmynda ekki síður en stúlkurnar ef tekið er mið af rannsóknum sem benda til að drengirnir séu undir enn meiri þrýst- ingi frá fullorðnum en stúlkurnar um að sýna „rétta hegðun", þ.e. vera „strákalegir" eða leika sér með „strákaleikföng" (Turner og Gervai 1995, Serbin o.fl. 1993). Skila- boðin til drengjanna um „karlmannshlutverkin" eru mjög mótsagnakennd. Samfélag- ið er að breytast í átt til aukinnar samábyrgðar beggja kynja í atvinnulífi og fjöl- skyldulífi, en daglega berast skilaboð í gegnum fjölmiðla um hvað felst í því að vera karlmaður, m.a. um það hvers kyns valdhafarnir eru sem taka ákvarðanir um mikil- væg samfélagsleg málefni. Karlmenn eru ýmist hafnir til skýjanna sem hetjur eða fyrirlitnir sem ofbeldisfullir ruddar. Það þykir ekki karlmannlegt að vera „aumur" eða sýna viðkvæmni. En hver getur alltaf verið sterkur? Skilaboðin og væntingarnar geta reynst erfið viðfangs í samfélagi sem hvergi hlífir börnum, og skiljanlegt að leiðir til útrásar verði stundum sérkennilegar hjá drengjum. Þeim getur reynst erfitt að þróa með sér sterka kynferðisvitund sem einkennist af sveigjanleika og kjölfestu þess sem er stoltur af eigin kynferði, og þarf ekki sífellt að vera að „sanna sig". Skólasálfræðingar og sérkennarar hafa haft áhyggjur af þeim fjölda drengja sem eru tilfinningalega tættir og hafa bent á að óljósar kynímyndir geti átt hlut að máli (sjá m.a. Ásþór Ragnarsson 1992:63-75, Kragh-Muller 1987:315-338). Ymislegt bendir til þess að jafnréttisbaráttan hafi þegar haft jákvæð áhrif á stúlkur. Má þá nefna góðan námsárangur stúlkna og einnig rannsóknir sem benda til þess að stúlkur hafi öðlast aukinn félagslegan styrk og sjálfstraust (sjá m.a. Reisby 1994). í einu af íslensku Nord-Lilia verkefnunum, sem unnið var í Æfinga- skóla Kennaraháskóla íslands, beindist athyglin einmitt að því að skoða ólík vinnu- brögð stúlkna og drengja í hópvinnu, þar sem stúlkurnar höfðu greinilega yfirburði (Lilja Jónsdóttir 1996). Slíkar niðurstöður eru ánægjulegar og til þess fallnar að örva stúlkurnar og hvetja þær til dáða og aukinnar sjálfsvirðingar. 116 h
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.