Búnaðarrit

Årgang

Búnaðarrit - 01.08.1915, Side 31

Búnaðarrit - 01.08.1915, Side 31
BÚNAÐARRIT 189 um og stundum hvorutveggja. Áhöld af þessari gerð nota rafmagnið vel og hita fljótt, en til þess að forða þeim frá skemdum verður að gæta þess, að láta þau aldrei vera tóm, meðan þau eru tengd við leiðslurnar, en þetta er auðvelt með því, að ekki þarf annað eu að snúa snerli til þess, að rjúfa sambandið. Hins vegar þurfa ílátin að vera vel mörg, og verða þau þá nokkuð dýr. Suðu-áhöld af þessari gerð munu kosta: fyrir alt að 5 manna heimili hér um bil 200 kr. — — — 10 — — — — — 350 — Önnur tegundin eru hinar svonefndu saðu-pVótur. Eru það nokkurskonar eldavélar með 1, 2 eða 3 eld- stæðum. í eldstæðunum eru kyndiþræðirnir; þau eru slétt að ofan, og á þau má setja hverja flatbotnaða potta eða katla, sem vera skal. En suðu-plöturnar hafa þann ókost, að þær eyða meiru rafmagni heldur en sjálfhitunar- áhöldin, því nokkuð af hitanum úr plötunum fer út í herbergið og það því mbira, sem pottarnir falla ver á plöturnar. Suðuvél af þessari gerð með 2 eldstæðum kostar hér um bil 110 kr. Þriðja tegundin eru vatnssuðu-vélarnar og er Saxe- gaards-vélin þó einna þektust þeirra. Þær eru þannig gerðar, að í kassa, nokkurskonar matsuðukassa, með tvöföldu loki er allmikið hólf með vatni í, sem stöðugt er haldið mjög heitu með kyndiþræði í botninum. í miðju þessu hólfl nokkuð undir vatnsborðinu er grind, og á hana eru svo sett ílátin, sem sjóða skal í, og kassanum lokað. Þessar vélar hafa þann mikla kost., að þær þurfa mjög lítið rafmagn i hlutfalli við hinar áðurtöidu. en stöðugt þarf það heizt að vera. Þær eru þvi mjög hentugar i borgum og kaupstöðum, þar sem rafmagnið er alla daga og nætur. Verð vélanna mun vera 150 til 300 kr. eftir stærð.

x

Búnaðarrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.