Búnaðarrit - 01.08.1915, Blaðsíða 83
BÚNAÐARRIT
241
Mællngar o. fl. Fyrst er þess að geta, að gerðar
voru i sumar mælingar til frekari rannsókna og undir-
búnings hinni fyrirhuguðu Flóa-áveitu. Jón verkfr. Is-
leifsson stóð fyrir þessum mælingum og framkvæmdi
þær, undir yfirumsjón Jóns verkfr. Þorlákssonar. Að-
stoðarmenn við mælingarnar voru þeir Bjarni búfr.
Eggertsson frá Yaðnesi og stud. polyt. Helgi Ouö-
mundsson frá Reykholti. Auk þess var drengur til snún-
inga, Sigurður Oissurarson frá Bygðarhorni.
Fyrstu dagana var eg við þetta mælingastarf með
Jóni. Fórum við um alt áveitusvæðið 9. og 10. júní.
Yar síðan byrjað á mælingunum 11. s. m., og þeim
svo haldið áfram alt sumarið. Um 20. okt. var þeim
iokið eða hætt.
Það er vikið að þvi hér að framan. að hlaðið hafi
verið fyrir vatnságang úr vatnsfallinu ökálm í Álftaveri.
í áætlun minni um verkið, dags. 21. nóv. 1911, er gert
ráð fyrir því, að það sem mest liggi á að gera só um
900 metra garður, og muni kosta nálægt 2000 kr. En
með því að ástæðurnar þarna hafa breyzt nokkuð síðan
1911 til hins lakara, þá lagði eg áherzlu á það í vor,
að gert yrði sem mest að hægt væri. Fyrirhleðslugarð-
urinn varð því nokkuð lengri en áður hafði verið til-
tekið. Hann er 1295 metrar á lengd, eða 1824 rúm-
metrar, og hefir kostað tæpar 2160 kr.
En nú þarf nauðsynlega að lengja garðinn, að minsta
kosti suður og austur Skálmarbakkana, austur yfir Fijóts-
dælnaræsi. Eru það nálægt 1050 metrar, og geri eg ráð fyrir
að það mundi kosta upp undir 2000 kr.
í Holti undir Eyjafjöllum mældi eg fyrir skurði til
varnar, þurkunar og áveitu. Yegalengdin nálægt 3300
metra, og kostnaðurinn áætlaður 1800 kr. Verð eg að
telja þennan skurð nauðsynlegan fyrir Holtshverfið, og
hlyti hann að gera mikið gagn, væri hann gerður.
Gerður var á þessu ári skurður til áveitu á engjar
Eyhverfinga i Út-Landeyjum. Vatnið er tekið úr Fljóts-
16