Búnaðarrit

Årgang

Búnaðarrit - 01.08.1915, Side 53

Búnaðarrit - 01.08.1915, Side 53
BÚNAÐARRIT 211 Engin ráð eru enn fcá fundin, sem geta aftrað þvi, að hafís og harðindi geri okkur margvíslegt tjón, en því tjóni er hægt að verjast, sem rnestu máli skiftir, ef landsstjórn og bændur vilja hjálpast að til þess. Pað er hægt að varna því, að harðindin geri okkur á einu vori svo mikið tjón á búte okkar, sem svarar þriðjungnum, helmingnum eða meira ai' vcrði alls búljár á iandinu, eins og þau hafa stundum gert að undanförnu. Eg skal svo strax koma fram með mínar tillögur, þó að sumir kunni að brosa að þeim. Fyrst og fremst á að hætta við það, að valdbjóða fjártrygginga-ráðstafirnar og að hóta bændum hegniugu fyrir afleiðingarnar af ógætilegum heyásetningum. — í þessu rnóli á ekki að beita valdboðum eða hót- unum um sektir. Það scm þarf að framkvæma í því verður að fást með frjálsum samtökum bænda. En landstjórnin verður að gangast fyrir því, að þessi samtök komizt á, og styrkja bændur ríflega af almanna fé til tramkvæmdanna. Alþingi ætti að semja ein lög urn tryggingu búfjár gegn harðíndum. Ætti þá að byrja á því, að stjórnar- ráðið skipaði menn til að ferðast um landið og eiga fundi með bændum og hvetja þá og leiðbeina þeim til þess, að gera lireppasamþyktir um gætilegan hey- ásetning, um rækilega forðagæzlu, um stofnun fóðurforðabúra og um stofnun bútryggingarsjóðs. — í lögum þessum ætti að taka fram öll þau atriði til búfjártryggingar, sem þurfa að standa í hverri samþykt, til þess að fá nauðsynlegt samræmi í fjártryggingar- ákvæðin um alt land. Jafnframt þessu ætti löggjafar- valdið að heita hverjum hreppi, sem samþykt gerir, að greiða úr landssjóði s/» parta af öllum kostnaði við forðagæzlu, fóðurforðabúr og hútryggingarsjóð,

x

Búnaðarrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.