Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.08.1915, Page 68

Búnaðarrit - 01.08.1915, Page 68
226 BÚNAÐARRIT Þó verður ekki annað sagt, en að hann sé laglegur og einkennilegur að ýmsu ieyti. Til hægri handar er í- búðarhúsið, sjálfur bærinn, en til vinstri er fjós og hlaða. Geri eg ráð fyrir að ætlast sé til, að nokkur hluti heys- ins sé geymdur á lofti yfir fjósinu. Milli hlöðu og bæjar er dálitið sund, sem eflaust á bæði að varna aðfoki og vera til tryggingar, ef eldur kæmi upp. Milli húsanna er ferhyrndur húsagarður, sem skift er í reiti fyrir mat- jurtir eða blóm, en með fram húsveggjum allbreið steinlögð stétt. Veggir húsa eru lágir og kjallari eng- inn eða mjög lítill. Veggir er ætlast til að séu úr stein- steypu og hvítir, en timbur í vindskeiðum og göflum efst, rauðbrúnt á lit, viðurinn líklega tjargaður með hrátjöru. Þök á húsum öllum ætlast G. S. til að séu græn torfþök með góðum pappa undir. Hinu megin bæjar- ins sjást íjöll í fjarska. Myndin fríkkar mikið, ef hún er lituð, en tæki voru ekki til þess. Ef prentun tekst vel, má eigi að síður gera sér glögga hugmynd um alt útlit slíks bæjar og svip hans. Með sæmilegri umgengni ætti að geta verið snoturt og þrifalegt kringum slíkan bæ. G. S. hefir numið húsagerðarlist á listaskóla Kaup- mannahafnar. Myndin ber þess vott, því bænum svipar mjög til danskra sveitabæja. Þeir íara sérlega vel á dönsku flatneskjunni og eru að mörgu leyti bæði smekk- legir og þægilegir, en mér finst þó nokkur vafi á þvi, að þeir eigi eins vel við íslenzkt fjallalandslag, og hæpið að fólk vilji vera án góðs kjallara undir húsinu. En hvað sem þessu líður sýnir myndin, hvernig á að vera umhorfs „kringum bæinn". Ouöm. Hannesson.

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.