Búnaðarrit - 01.08.1915, Side 98
256
BÚNAÐARRIT
Hvað viðvíkur geymslu ostanna meðan þeir eru að brjóta
sig, þá kunna konur mörg ráð til þess. Það er alltítt crlendis,
að húsfreyjur geymi ostana nokkra sólarhringa í fjósinu, þegar
búið er að móta þá og salta. Þetta er ráðlegt, sé verulega góð
loftræsla í fjósinu, en henni mun vera ábótavant hér á landi, og
mundi því þess háttar geymsla vera miður heppileg. Agætlega
hefir mér reynst að halda ostunum heitum í hitageymi (moðkassa)
og koma þannig lifi í gerðina. Það er fremur handhægt að hita
ostana i hitageymum, t. d. má gera það likt eg hér segir: Baka
hey í potti yfir lítilli glóð á líkan hátt og fiður. Þegar heyið er
orðið vel þurt og heitt, eru ostarnir faldir í því og potturinn
byrgður. Að svo búnu er potturinn látinn í algengan hitageymi
(sjá um hitageymi í „Frey“ XII. ár nr. 3). Heyið má baka
daglega og halda þannig við hæfilegum hita, og fela svo ostana
á ný eftir hverja hitun. Að nokkrum sólarhringum liðnum eru
ostarnir venjulega látnir brjóta sig til fulls á hæfilega rökum og
svölum stað. Við stofuhita (16°—18° Cels.) er bezt að lífga gerð-
ina í ostunum, og er það langhandhægast, verði þvi komið við.
Hvað snertir ostagerð að öðru leyti, visa eg til ritgerðar
minnar í fyrra hefti B-únaðarritsins, og vona eg að konur kynni
sér hana rækilega.
Gísli Guðmundsson.
í síðasta hefti Búnaðarritsins gleymdi eg að geta þess, að eg
mun láta í té gráðamyglu handa þeim, sem kynnu að vilja gera
gráðaosta, ef beðið er um hana með nokkrum fyrirvara. Enn
fremur er liklegt, að unt sé að útvega hleypi, sem notaður er
við gráðaostagerð.
Prentvilla var i þeirri grein minni á bls. 85“, 91"
og 955: Casci f. casei. G. G.