Búnaðarrit - 01.01.1920, Side 72
66
BÚNAÐARRIT
2. Garðjurtir.
A. Matjurtir.
1. Oulrófur. Yaxa best í leirblöndnum moldar-
jarðvegi. í harðindasveitum er best að sá þeim í vermi-
reit fimm vikum áður en þær eru gróðursettar í garð-
inn. Þar sem veðrátta er betri, má sá þeim annaðhvort
í vermireiti, sem engin hitaframleiðsla er í, eða í garð-
inn. Gulrófum er sáð — eða þær gróðursettar — í raðir,
með 40 sm. millibili, og skulu vera 25 sm. milli plantn-
anna í röðunum. — Aðallega hafa þau tvö afbrigði verið
reynd Bangholm og Prándheims; munur lítill á þeim;
það fyrnefnda heldur stærra, en hættir fremur við að
trjenast en Þrándheims-gulrófunum. — íslenskum gul-
rófnastofni af Bangholms-afbrigði, áframhald af þeim,
sem Schierbeck landlæknir ræktaði hjer, hefir verið
haldið við í gróðrarstöðinni í Reykjavík. — Hafa rófur
af því fræi reynst best þar í stöðinni.
2. Kartöflur þrífast best í sendnum jarðvegi, og eru
settar í raðir, með 55 sm. bili milli raða, en 25 sm. á
milli plantnanna í röðunum.
Itarlegar tilraunir með kartöflurækt hafa verið gerðar
í tilraunastöðvunum á Akureyri og í Reykjavík. Frá
þeim er skýrt í Ársriti R. N. 1913, og í Búnaðarritinu
í skýrslum gróðrarstöðvarinnar í Reykjavík. — Fyrir
stuttleika sakir, skal vísað til þeirra skýrslna, að eins
geta þess, að þessi 10 afbrigði hafa reynst best í gróðrar-
stöðinni í Reykjavík: Harbinger, Iiemarkable, Beauty
og Hebron, Agnelli, Early goldstream, Dr. v. Ecken-
brecker, Prof. Dr. Orth, Bodö-kartöftnr, Ægge-
blomme, Wonder of the World. — Alls hafa yfir 100
kartöflu-afbrigði verið reynd í Reykjavik.
Eftir 10 ára reynslu (1904—’ 13) hefir uppskeran verið
að meðaltali af dagsláttu, af bestu afbrigðunum þessi,
í gróðrarstöðinni á Akureyri: