Búnaðarrit - 01.01.1920, Blaðsíða 123
BÚNAÐARRIT
117
að sækja, og sýndi mjer garð sinn og aðra garða í ná-
grenninu, þá daga sem jeg var þar.
Veðrátta er stöðug í Piteá, og sumarið heitt; snjór
liggur allan veturinn og skýlir jörðinni, — þiðnar venju-
lega frá 6.—12. maí, og viku eftir má sá og setja í
garða. — Garður Ringues bankastjóra er kunnur víða
fyrir fegurð sína, þar vaxa epli, og eru það sjerstaklega
ýmsar tegundir frá Síberíu. Þegar aldintrjen blómgast,
má heita að allur garðurinn sje snjóhvítur. Vaínings-
viðir þekja alla húsveggi. Til mikillar sorgar fyrir
bankastj. hafði skæður sveppur sýkt eplatrjen síðustu
árin, og valdið stórskemdum. Er það átumein, Nectria
detissima (náskylt þeim óhræsis svepp, sem drepið heflr
mestallan reynivið hjer í Reykjavík á síðustu árum, og
flutst hefir hingað með útlendum plöntum). — Mesta
undur þótti mjer að sjá, hvað ýmsar káltegundir voru
stórvaxDar. í einu horni garðsins stóð all-mikið af hvít-
káli, sem flest voru frá 8—11 kg. Stærsta hvítkálshöfuð,
sem bankastj. hafði ræktað, var 12 kg. Blómkál og
rauðkál þrífst ágætlega þar. í Piteá, og yfir höfuð að
tala í Norrlandi, er mikið ræktað af rótarávöxtum, kart-
öflum, gulrófum og gulrótum, t. d. hefir sjerstaklega
ein róínategund, rússnesk að uppruna, gefist ágæta vel.
„Krasnoje Selskoje" er nafn hennar, og verður hún
reynd í Gróðrarstöðinni í Reykjavik í sumar, ásamt öðrum
sænskum afbrigðum. — í Piteá er afar-stór geðveikra-
spítali, og eru 26 ár síðan hann var byggður. Þá fjet
Ringues bankastj. — hinn eldri — rækta landið þar um-
hverfis, og er þar nú mikiil trjá- og blómgarður, og
matjurtarækt í stórum stíl á bersvæði, en viðkvæmari
og fínni tegundir matjurta og blóma í ræktarhúsum.
Var þar margt fróðlegt að athuga.
Jeg var í Piteá í viku, og naut mikillar gestrisni hjá
bankastjóranum. Svía íýsti mjög að heyra tíðindi frá
íslandi, og mig furðaði oft á, hve góða og rjetta hug-
mynd þeir höfðu um ýmisleg málefni. Flestir spurðu þeir