Búnaðarrit - 01.01.1920, Page 134
128
BÚNAÐARKIT
Kostnaðurinn við að plægja einn hektar, er talinn 14—
21 kr. minni fyrir stærri vjelarnar. — í Ameríku er að
sjálfsögðu vjelar og olía ódýrara en hjer.
S. Sigurðsson,
skölastjóri.
Sýning á íslenskum heimilisiðnaði.
Stjórn „Heimilisiðnaðarfjelags íslands" hefir beðið oss, að flytja
þesBa áskorun:
Nytsemi sýninga á hvers konar afurðum, er fyrir löngu viður-
kend um allan heim. Á sýningum kemur það í Ijós, á hvaða stigi
hver atvinnugreinin stendur. Þar er besta yfirsýn yfir listfengi
og smekkvísi þjóðarinnar, hugvit hennar, liagsýni og handleikni;
þar er staðurinn til að koma nýjungum á framfæri, læra af öðrum
og kenna öðrum. Sýningar vekja að jafnaði heilbrigt kapp og fram-
takssemi. Vjer íslendingar ættum að hafa þær miklu oftar, og í
fleiri greinum, en hingað til hefir orðið. — Heimilisiðnaðarfjelag
íslands hefir nú á aðalfundi sínum í ár, ákveðið að stofna til sýn-
ingar á íslenskum heimilisiðnaði fyrir land allt, sumarið 1921. Er
þess vænst, að þátttakan verði almenn, og að á sýninguna komi
sem flest af heima-unnum munum, sem notaðir eru í daglegu lífi
manna hjer á landi, bæði gömlum og nýjum hlutum, svo sem ýmis-
konar saumur, vefnaður og önnur tóvinna, trjesmíðar, útsagaðir
og útskornlr munir, málmsmíðar, steinsmíðar og múrsmíðar, skó-
smíðar, sópar, burstar, körfur, bókband, leður- og pappírsiðnaður
o. fl. — Verður síðar auglýst, hvar og hvenær tekið verður á móti
munum á sýninguna.
Reykjavík 1. dcsomber 1919.
Inga L. Lárusdóttir, Ingibjörg H, Bjarnason.
p. t. forseti.
Laufey Vilhj álmsdóttir, j Matthias Þórðarson,
p. t. ritari. þjóðmonjavörður.
Ragnliildur P j e tu rs d ó 11 i r, Sigr. B j ö r ns dó 11 i r.
p. t. gjaldkeri.
Steinunn H. Bjarnason.