Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 31
Hlín
29
Sigurður var framúrskarandi karlmenni, viðmótsþýð-
ur og drengur hinn besti.
Valgerður var mikil og góð móðir, enda elskuð og virt
af dætrum sínum, tengdasonum og barnabörnum, sem
endurguldu umhyggju hennar og kærleika ríkulega í orði
og verki, þegar kraftar hennar þrutu, og raunar alla tíð.
Valgerður andaðist hinn 13. júní 1957 að Landakots-
spítalanum í Reykjavík. — Jarðarför hennar var gerð
hinn 24. júní, á Jónsmessu. — Hvílir hún í heimagrafreit
að Kolviðarhóli ásamt manni sínum.
Minnisstæður mun útfarardagur hennar verða öllum
viðstöddum. En þeir skiftu mörgum hundruðum. — Allir
vildu, sem framast máttu, votta þessari blessaðri, góðu
konu virðinga sína. — Svo fór og þeim, sem ræður sól og
þíðum vindblæ. — Hásumardagur í allri dýrð á fjöllum
uppi minnir á að til eru „sólarlönd fegri“, þar sem Val-
gerðar munu bíða enn meiri og háleitari verkefni.
Við drúpum höfði hljóð, og þökkum þeim hjónum
báðum á Kolviðarhóli ómetanlegt starf í þágu þjóðar-
innar.
Sigrún Gísladóttir.
Oddný Guðmundsdóttir
læknisfrú frá Stórólfshvoli varð 70 ára hinn 20. maí 1959,
því fædd er hún að Bakka í Austur-Landeyjahreppi í
Rangárvallasýslu hinn 20. maí 1889.
Foreldrar liennar voru þau: Guðmundur Diðriksson
frá Hólmi í Landeyjum og Kristín Jónsdóttir frá Bakka
í sömu sveit. — Margir Rangæingar eru afkomendur Dið-
riks í Hólmi. Meðal þeirra hinir þektu, mörgu synir og
sonarsynir Ólafs frá Eyvindarholti, og hinir nafnkunnu