Hlín - 01.01.1959, Side 41
Hlín
39
1900 var Þórunn húskennari hjá Jóhanni Möller, kaup-
manni á Blönduósi. — Foreldrar mínir í Mjóadal fengu
svo Þórunni fyrri hluta vetrar 1900 í tvo mánuði til að
kenna okkur systrunum. — Við vorum þrjár, og þótti
hagkvæmara að fá kennara heim á heimilið, en að koma
okkur öllum í burtu. — Kennarakaupið var ekki hátt í þá
daga. Þórunn tók 2 krónur á viku. — Hún var afburða
góður kennari. — Hún hagaði kenslunni til eins og á
Ytriey var gert, hafði bóklegu tímana á morgnana, en ljet
okkur svo sauma frá kl. 12—4 á daginn. — Meðan við vor-
um að sauma, kendi hún okkur sönglög. — Við vorum
allar sönghneigðar, og höfðum mikinn hug á að læra lög,
cn ckkert hljóðfæri var til á heimilinu, svo eina leiðin til
þess að læra var sú, ef sá sem kunni lagið, vildi leggja það
á sig að syngja það þangað til við lærðum það, og þetta
gerði Þórunn, hún söng altaf meðan við vorum að sauma,
og þegar við vorum búnar að læra lögin, þá söng hún
milliröddina, til þess að vita, hve sterkar við vorum í lag-
inu. — Þessa tvo mánuði, sem hún var, lærðum við 50
lög af hénni.
Veturinn eftir var svo Þórunn aftur tvo mánuði eftir
áramóin, og alt gekk til eins og fyrri veturinn, við lærð-
um hjá henni hannyrðir, hvítan og mislitan útsaurn, eins
og þá gerðist, og bókleg fög þau sömu og veturinn áður.
— Á þessum tíma lærðum við önnur 50 lög, og svo vel
kendi hún okkur öll þessi lög, að það var eins og hún
hefði nóturnar fyrir framan sig, enda s^ hún þær í sínum
hugarheimi, meðan hún var að syngja þau. — Jeg hygg
að þetta sje dæmafátt, ef ekki dæmalaust, að kennari
leggi svona lagað á sig.
Þórunn fór til Danmerkur vorið 1902, og var ferðinni
heitið til þess að fullkomna sig í orgelspili. — Ingibjörg,
móðir Þórunnar, skrifaði Guðmundi Hannessyni, sem þá
var læknir á Akureyri, og bað hann að skrifa einhverjum
í Danmörku, sem hann þekti, og biðja þann hinn sama
að leiðbeina Þórunni og aðstoða hana, ef hún þyrfti með.