Hlín - 01.01.1959, Síða 57
Hlin
55
gestum með þeim hætti, að þeim varð dvölin á heimili
hennar ánægjuleg og eftirminnileg.
Enda þótt Guðrún væri stundum fáorð við fyrstu
kynni, meðan hún var að átta sig á mönnum og málefn-
um, þá var alúð hennar æ því meiri sem hún kyntist fólki
betur, svo að traust og hlýhug vakti. Sóttu margir, sem
henni kyntust vel, til hennar holl ráð, bæði heimilisfólk
hennar og aðrir, og ræddu við lrana um vandamál sín.
Reyndist það öllum, að hún kynni þar oft viturleg ráð
að gefa, sem þeir voru í vanda staddir.
í fjelagslífi sveitarinnar var hún á sama hátt góður
stárfskraftur. Samt var hún í eðli sínu fremur hljedræg
og sóttist ekki eftir forystu í þeim efnum, enda þótt liún
hefði til þess mikla hæfileika. — Um langt skeið var hún
þó í stjórn kvenfjelagsins „Hjálpin“ íSaurbæjarhreppi.og
ásamt nokkrum konum öðrum var lrún ein af aðalhvata-
mönnurn að stofnun „Hjeraðssambands eyfirskra
kvenna", og gaf því Sambandi nafn á sínum tíma. En það
var stofnað til að vinna að endurreisn Húsmæðraskólans
á Laugalandi, og hefur margvíslega hlynt að þeirri stofn
un, eftir að hún komst á fót. Guðrún var í stjórn þessa
sambands frá upphafi, þangað til hún sagði því starfi af
sjer rúmu ári áður en hún andaðist, er heilsu hennar tók
að hnigna. Reyndist hún þar, sem annarstaðar, tillögu-
góð og hollráð.
Þegar litið er yfir æfiferil Guðrúnar Jónasdóttur a
Möðruvöllum, virðist mjer að hún hafi verið hamingju-
kona í rnörgum hlutum. Fyrst voru henni gefnir góðir
hæfileikar í vöggugjöf. Ung var hún tekin úr fátækt af
sæmdarhjónum, sem unnu henni og veittu henni hið
besta uppeldi. Hún giftist í blóma aldurs síns manni, sem
hugur hennar kaus, og býr með honum í ástríku hjóna-
bandi mörg ár á einu fríðasta höfuðbóli sveitarinnar við
mikla virðingu og vinsældir sveitunga sinna. — Börn
hennar vaxa upp góðu atgervi búin. Aðeins einn skugga