Hlín - 01.01.1959, Page 63
Hlin
61
Sigríður Eyjólfsdóttir,
Bjargi í Borgarfirði eystra.
MINNIN GARORÐ.
Hinn 22. júlí 1958 var Sigríður Ingibjörg Eyjólfsdótt-
ir til moldar borin frá Bakkagerðiskirkju í Borgarfirði í
Múlaþinghá. Hún andaðist að heimili sínu, Bjargi í
Bakkagerðiskauptúni þann
15. júlí, 93 ára að aldri,
eftir nokkura vikna legu.
Sigríður var fædd á
Stekk í Njarðvík hinn 18.
október 1864, dóttir hjón-
anna Sigurbjargar Jóns-
dóttur jjrests Reykjalín á
Þönglabakka og Eyjólfs
Þorkelssonar, Sigurðssonar
í Njarðvík Jónssonar, en
frá Sigurði er rakin Njarð-
víkurætt hin yngri. Stóðu
þannig að Sigríði traustir
ættstofnar.
Meðan Sigríður var á
barnsaldri fluttust foreldr-
ar hennar að Gilsárvalla-
hjáleigu í Borgarfirði og bjuggu eftir það allan sinn Itú-
skap þar. Börn áttu þau hjón fleiri, en Sigríður ein
komst úr æsku.
Arið 1890 giftist Sigríður mætum manni, Hannesi, er
lengi var hreppstjóri í Borgarfirði, Sigurðssyni. Sigurður
var frá Stokkhólma í Skagafirði, Árnason, en bjó á Hóla-
landi í Borgarfirði.
Hófu þau Hannes og Sigríður l)úskap á Gilsárvallahjá-
leigu og bjuggu þar til ársins 1907 er þau fluttust út í
Sigriður Eyjó Ifsdóttir.