Hlín - 01.01.1959, Side 64
62
Hlin
Bakkagerðiskauptún, en þar reisti Hannes húsið Bjarg,
sem áður er nefnt. Börn þeirra, sem upp komust eru:
Eyjólfur, hreppstjóri á Bjargi, Sigurður, húsameistari á
Akureyri, Guðrún, frú á Akureyri, og Gyðríður Sigur-
björg, sem látin er fyrir allmörgum árum. — Á Bjargi
bjuggu þau hjón síðan, þar til Eyjólfur sonur þeirra tók
við búi. Dvöldu þau þar síðan hjá honum til æfiloka,
utan hvað Sigríður dvaldi um árs skeið hjá Guðrúnu
dóttur sinni á Akureyri fyrir nokkrum árum. — Hannes
andaðist árið 1943.
Sigríður var kona mæt og merk og gáfuð vel. — Hún
var fróðleiksfús og bókhneigð, enda afburða fróð. Kunni
hún margt af fróðleik þeim og skemtan, er ment hefur
þjóðina á liðnum öldum og fram undir þennan dag. Hún
var merkur fulltrúi þeirrar kynslóðar, sem nú er að verða
öll í landinu, þeirrar kynslóðar, sem rætur sínar átti í
ment og atvinnuháttum fortíðarinnar, en lifði það að sjá
hinn nýja tíma renna yfir þjóðina, og það er óhætt að
fullyrða, og sýnir enda greind Sigríðar, að fáir þeir, er
þessa tvenna tíma hafa lifað, hafa samið sig svo að hinum
nýju háttum, án þess að tapa nokkru af uppruna sínum,
sem hún.
Hún bjó sjer með bónda sínum gott Iieimili, þar sem
gestrisni var mikil, og alla tíð hafði hún yndi af því, er
menn komu til hennar, lrafði gaman af viðræðum við
aðra og naut sín þar vel. Hún var skemtin í tali og talaði
sjerlega fagurt mál, liafði á vörum ýmis forn og fögur
orð og orðasambönd, sem nú finnast vart lengur nema í
orðasöfnum.
Sigríður var greiðvikin kona og hjálpfús og næm fyrir
því, livar hjálpar þurfti við, rjetti enda mörgum hjálpar-
hönd, er þess þurftu með, og hún gat því við komið.
Hún var kona fjelagslynd og hafði áhuga á fjelagsmál-
um. Starfaði Iiún lengi í kvenfjeHgi sveitarinnar og var
þar góður og traustur liðsmaður. Minnast samverkakonur
liennar í fjelaginu hennar með virðingu og þakklæti fyr-