Hlín - 01.01.1959, Side 73
Hlin
71
kirkjan á heimilum okkar Jiefur svipuðu hlutverki að
gegna og kirkjan alment, eins og talað er um hana í víð-
tækri merkingu.
Hverskonar kirkja er það þá, sem þú hefur heima hjá
þjer? Er hún vakandi og vaxandi? Hefur hún ákveðna
stefnuskrá, sem hún fylgir fram með ráðum og dáð? Er
kirkan heirna hjá þjer fræðslustofnun fyrir yngri og eldri
meðlimi fjölskyldunnar, stofnun sem eflir kærleika,
fórnarlund og samfjelag þeirra ,sem daglega setjast að
dagstofuborði þínu? Eða er slík kirkja alls ekki til í húsi
þínu? Eða er hún svo veik og áhugalaus, að þegar þú set-
ur ofan í við hina almennu kirkju og kvartar yfir því, að
kristni nútímans hafi brugðist skyldu sinni og köllun, þá
ert þú óbeinlínis að kveða upp dóm yfir þínu eigin
heimili?
Ef til víH hefur þjer aldrei komið það til liugar, að
kirkja eigi að vei'a til heima hjá þjer, og þú spyrð: Hvað
áttu við með þessu: Kirkjan heima hjá þjer?
Þetta bugtak fyrirfinst þó víða í ritningunni, og Páll
postuli notar það oft. T. d. í fyrra Korintubijefinu 16:19
segir Páll: „Akvílas og Priska, ásamt söfnuðinum í húsi
þeirra, biðja kærlega að beilsa yður.“ Páll skrifar vini sín-
um Fílemon og biður bann að skila kveðjum til nokkurra
tiltekinna vina, og „söfnuðinum sem kemur saman í búsi
þínu.“ (Fíl. 1: 1.—2.) Augljóst er að postulinn á hjer við
smábópa kristinna manna, sem komu saman til guðsþjón-
ustubalds á einkaheimilum, áður en um opinberar bygg-
ingar var að ræða, eða samkomuhús fyrir söfnuðina. —
En jafnvel þótt breyting sje orðin á í þessum efnurn,
minna þessi orð á eðli kristinnar kirkju og þær skyldur
sem hvíla á kristnum foreldrum og þá blessun, sem er
samfara því að stofna og efla kirkjuna heima hjá þjer.
í fyrsta lagi ber að taka það fram, að kirkjan heima
Irjá þjer er mynduð af samfjelagi trúbræðra, en það hygg
jeg muni veia einfaldasta skilgreiningin á hugtakinu
kirkja, eins og það er notað í Nýja testamentinu. — í