Hlín - 01.01.1959, Side 79
Hlin
77
hundruð plöntukassa, steypa potta o. s. frv. — Öll vor-
verkin þurfa að vera tilbúin fyrst í mars, þá er byrjað
að sá.
Við notum íslenskt gulrófufræ (Kálfafellsrófur). Erum
í sumar að rækta rófufræ út af þessum rófum, og vonum
að geta þá miðlað öðrum af okkar fræi.
Við höfum notað plast í vermireitsglugga og hefur
reynst það vel. Sjerstaklega mikill ljettir við vinnuna.
Við erum hjer austur frá G konur í garðyrkjunefnd fyr-
irÁrnes- og Rangárvallasýslur, kosnar af Sambandi sunn-
ienskra kvenna. — Við vinnum að því að heimilin eignist
skrúð- og matjurtagarða.
Það væri mjög nauðsynlegt, að svona smá garðyrkju-
stöðvar, eins og okkar, væru á einum eða tveimur stöðum
í öllum sýslum landsins. — Þá væru möguleikar fyrir
hendi, að fólk gæti fengið þær plöntur, sem það þyrfti
nauðsynlega á að halda, án mjög mikillar fyrirhafnar og
kostnaðar.
Svo þurfum við öll í sameiningu að fá einn garðyrkju-
ráðunaut, fastan, fyrir hverja sýslu. — Við höfum full-
komlega nóg starf fyrir manninn alt árið: Við getum
snúið okkur til hans með allar jarðvegsrannsóknir, um
notkun á áburði og á öllum þeim nýju lyfjum, sem nauð-
synlegt er orðið að nota til þess að geta ræktað. — Það
verður ekki lag á garðyrkjunni fyr en við fáum garð-
yrkjuráðunaut í hverja sýslu.
Jeg vonast eftir að jeg fái sem flesta með mjer til að
hugleiða þær fáu línur, sem jeg hef hjer skrifað.
Ragna Sigurðardóttir, Garðyrkjan, Þórustöðum, Ölfusi.