Hlín - 01.01.1959, Page 82
80
Hlín
þings heldur en hinna átta Búnaðarsambanda vorra, í
von um góða aðstoð.
Treystum því að við fáum góða áheyrn.
Að sjálfsögðu hlýtur sá tími að koma, og það heldur
fyr en seinna, að það þyki jafnsjálfsagt að hafa starfandi
hjeraðs-ráðunauta í garðyrkju, matreiðslu og handa-
vinnu eins og búfjár- og jarðyrkju-leiðbeinendur, og ekki
er þar minna í húfi að vel takist í framkvæmdunum.
Meðan við Ijíðum eftir okkar ráðunautum, konurnar,
treystum við ykkur, góðu Búnaðarþingsmenn, til að
styðja Samband norðlenskra kvenna við garðyrkjuna.
Höfum við dálítið fje til umráða, mun okkur veitast
auðvelt að fá, bæði fræðslu fyrir leiðbeinendur og stúlkur
til starfsins að loknu námi.
Virðingarfylst.
Blönduósi 14. febrúar 1959.
Stjórn Sambands norðlenskra kvenna.
Halldóra Bjamadóttir, formaður.
Sólveig Benediktsdóttir, ritari.
Vigdís Björnsdóttir, gjaldkeri.
Hukla Á. Stefánsdóttir, varaformaður.
Svar Búnaðarþings var svohljóðandi:
„Garðyrkjunautur B. í. mun veita ykkur alla þá að-
stoð, sem mögulegt er.“
Það er einn ráðunautur fyrir alt landið. — Vermihúsa-
eigendur telja sig sjerstaklega þurfa mikið á lijálp hans
að halda.
Að svo komnu máli munu norðlensku konurnar snúa sjer
hver til síns Búnaðarsambands og leita aðstoðar í garðyrkju-
málinu.