Hlín - 01.01.1959, Page 90
88
Hlín
kóngsbónda frá alþjóðadansmóti, sem haldið var í Osló
sumarið 1955. — En Páll Patursson er, svo var og faðir
lians, Joannes Patursson, sem aðrir mentaðir og mann-
vænlegir Færeyingar, mikill dansmaður á færeyskan dans.
— Einkum er viðbrugðið yfirburðum Joannesar kóngs-
bónda, alt til eliiára, þegar „kveða skyldi fyrir“ færeysk-
um dansi. — Að vísu dansa ekki Færeyingar nema kveða
jafnframt, en það er venja að allir kveði viðlag dans-
kvæðanna. — Meiri ábyrgð fylgir hinu, að „kveða fyrir",
eins og það er nefnt, syngja kvæðið sjálft, sem getur verið
á annað hundrað erindi. — Það er óþekt að syngja á bók,
enda ógerlegt, því forsöngvarinn ,„kveðarinn“, tekur þátt
í dansinum og mótar hraða danssporanna og hugblæ
fólksþyrpingarinnar með svip sínum og látbragði.
Danssporin eru einföld og tilbreytingarlaus, dansend-
ur haldast í hendur og mynda samfelda keðju, sem fyllir
salinn.
/ '
K’trkjubemúrurin.
Magnúsarltirkja í Kirkjubœ.
Það vccri ekki nema fjöður af fati allra þjóðkirkna Norðurlanda að
aðstoða Kœreyinga við að jullgera dómltirkju sina og búa hana
öllum skrúða. — Það vceri göfugt hlutverk.