Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 107
Hlin
105
Húskveðja var haldin í Búðinni í Sólheimum í Blönduhlíð
yfir vinkonu minni, Guðfinnu Jensdóttur, prófastsekkju frá
Miklabæ. — Veitingar eftir jarðarförina voru þá á Miklabæ. —
Þá fór einnig fram allfjölmenn, opinber móttaka með borðhaldi
á Víðivöllum fyrir Kristján konung 10. og drottningu hans
sumarið 1938.
Við margar fleiri samkomur og hjeraðsfundi hafði tjaldið
verið fengið, en á þeim árum var jeg ekki í Skagafirði.
Oft þreifaði maður á því, hvers virði það er að eiga slíkan
tilfæranlegan samkomusal, og þá ekki síður hitt að vera án
hans, þegar hann var eyðilagður.
Er mjer þar minnisstæðust útför Gísla bróður míns, sem var
jafnfjölmenn og móður minnar, en fór fram í slæmu veðri,
tjaldlaust. — Slíkar samkomur eru ekki hættulausar að vetr-
arlagi.
Þegar Búðin var leigð, var það skilyrði sett, að ætíð skyldi
tjaldið þurt, og að öllu leyti vel frá gengið, sett í pokana og
komið á geymslustað eftir notkun, og vissi jeg, að lengi var
þess vandlega gætt, að ekki væri vott grasstrá, hvað þá annað
meira, sem feygt gæti tjaldið. — En sennilega hefur, þegar frá
leið, og skilyrði hafa verið óhagstæð, orðið mistök með.
Vill oft sannast hið fornkveðna: „Að ekki er minni vandi að
gæta fengins fjár en afla þess.“
Tjaldið er úr sögunni, fyrir slit og ónóga umhirðu senni-
legast.
Lilja Sigurðardóttir, Ásgarði.
KVÖLDBÆN.
Jeg bið þig, faðir blíði:
Þín blessun yfir líði,
þá alt er orðið hljótt.
Æ, lát mig ljós þitt dreyma
og ljúfa minning geyma.
Ó, gef oss öllum góða nótt!