Hlín - 01.01.1959, Síða 116
114
Hlín
inu mætti mjer öldruð kona, var hún tengdamóðir hús-
freyju. — Hún gekk með mjer heim að bænum. — Hún
spurði mig eftir móður minni, jeg sagði henni sem var. —
„Þjer svipar talsvert til hennar,“ sagði hún, og virtist sem
henni þætti það þó betur, úr því sem komið var.
Húsfreyjan, sem var mesta gæðakona, tók mjer vel. —
Hún sagði að þetta væri' nú níunda barnið sitt, og yfir-
leitt hefðu fæðingarnar gengið vel. — Og ekki hefði hún
altaf Iiaft sömu Ijósmóðurina. — Jeg athugaði nú horfur
fæðingarinnar, þær virtust með eðlilegum ihætti, lifandi
barni í höfuðstöðu, ljettasóttin byrjuð, og líkur góðar
fyrir eðlilegri fæðingu. — Ljettasóttin hjelt áfram, fæð-
ingunni rniðaði eðlilega og klukkan 6 um morguninn
fæddist lifandi drengur. — Móður og barni leið vel. —
Mjer fanst þetta dásamlegur morgun. Brátt komu biirn
in, hvert af öðru, að fagna litla bróður og kyssa mömmu.
— Seinna um daginn gekk jeg út á eyna, þar varð tæpast
þverfótað fyrir kríueggjum og æðarhreiðrum, þar var
mikið líf. — Konunni heilsaðist vel. — En ekki höfum við
sjest síðan.
Næstu fæðingu hafði jeg 7. júlí þetta sama ár, þar
fæddist stúlka, og hef jeg tekið á móti liennar börnum. —
Vorið eftir var umdæminu skift, höfðum við móðir mín
þá sitt umdæmið hvor. — Þarna var jeg Ijósmóiðr nær því
8 ár, og var oft sótt í næstu hjeruð, en ekki náði þó fæð-
ingatalan fullu hundraði á þessum tíma, mjer þótti það
lítið.
Akureyri var þá að verða Ijósmóðurlaus. — Jeg talaði
við hjeraðslækni og bæjarstjóra um að fara utan og
verða svo Ijósmóðir á Akureyri, þegar heim kæmi, jieir
tóku því vel, en ekki var þetta þó fastráðið. — Um haustið
1921 fór jeg til Kaupmannahafnar í danska Ljósmæðra-
skólann.
í júlímánuði sumarið eftir fæ jeg brjef frá Akureyri, og
á nú helst að koma strax heim og gerast jrar ljósmóðir, en