Hlín - 01.01.1959, Side 120

Hlín - 01.01.1959, Side 120
118 Hlin skýrari, þegar gamall vinur kemur og sest við gluggann í stof- unni minni og tautar eitthvað um árið, sem nú er senn liðið. — „Liðið,“ segir hann og horfir út í rökkur vetrarins, og hann bætir við, meðan hann virðir fyrir sjer sofandi endurnar: „Og hvað hafðist svo upp úr því öllu saman?“ Fyrir mjer, sem skynjar birtu lífsins í djúpi sálarinnar, er spurning hans grárri og hversdagslegri en þokan umhverfis okkur. „Hvað hafðist svo upp úr því öllu?“ — Allir hafa heyrt þessi döpru orð. Margir hafa sagt þau. — Jeg man þó, hve þakklætistilfinningan streymdi í gegnum mig, þegar jeg í morg- un andaði að mjer tæru útiloftinu, horfði í augu konu minnar og mintist allra góðra, glaðra daga á liðna árinu. I huganum tek jeg í öxlina á vini mínum og hristi hann til og spyr, hvort hann hafi þá alveg gleymt, að einmitt þetta ár var einu sinni ungt og bjart, og að það varð, alveg eins og hans eig- ið líf, bjartara með hverjum degi sem leið. — Jeg minnist sam- líkingarinnar við árið og líf mannsins, og spyr hvað hann hafi gért með það ár, sem honum var gefið. — Og þegar hann vill ekki svara, svara jeg fyrir hann: „Þegar dagar hins nýja árs fóru að lengjast, var hugur þinn allur við vorið. — Það vor, sem þú tókst þó varla eftir, þegar það kom, sökum þess, að nú var hugur þinn allur bundinn við sumarið. — Sumarið, sem þú veittir heldur ekki eftirtekt, því í hugsunarlausri ágirnd þinni hafðir þú ímyndað þjer það bjartara, heitara og lengra en það samkvæmt lögmálum náttúrunnar gat orðið á þessum hluta hnattarins. — Og á meðan síðsumarið vermdi þig, reyndir þú að telja sjálfum þjer og öðrum trú um, að það hefði eiginlega ekkert sumar verið. „Hvað hafðist svo upp úr öllu þessu?“ andvarpar þú, án þess að gefa því gaum að hafir þú yfir einhverju að kvarta, þá er það vegna þess, að þú notaðir ekki árið á meðan það dvaldi hjá þjer.“ Jeg las einu sinni um unga skáldkonu, sem sagði frá því, að sitt fyrsta Ijóðasafn hefði hún skrifað af ást til hans, sem nú væri sinn eiginmaður. — Það var eins og það átti að vera, en þrátt fyrir, að þau búa nú saman hamingjusömu lífi og eiga yndisleg börn, heitir ljóðasafn hennar: „Á meðan við biðum eftir lifinu.“ En hve þú líkist mikið þessu bókarheiti. — Því miður hef jeg ekki lesið kvæðin, en mig grunar að þessi orð: „Á meðan við bíðum eftir lífinu“, gætu staðið sem „motto“ að harmsögu þinni og milljónum annara manna. — Umkringd af kærleika eigin-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.