Hlín - 01.01.1959, Page 128

Hlín - 01.01.1959, Page 128
126 Hlín fyrir alla sýslubúa, ef þeir mistu þennan læknir, sem hafði kynt sig svo aðdáanlega vel. — Símtölin gengu altaf, menn langaði að fara þeim til hjálpar, en ógerningur að geta vitað hvert átti að fara, og ekki fanst slóð þeirra um Hlíðardalinn, en þar var skíðafærið sagt svo vont, mestar líkur til að þeir hefðu ekki getað notað skíðin. Þeir sem aldrei hafa verið uppi á fjalli í dimmviðri, geta ekki ímyndað sjer hvað sortinn getur verið mikill, það er sama og að bundið sje fyrir augun á manni. Ekkert sjest fyrir mishæð- um. Það er bara iðandi hríðarmökkurinn sem sjest. — Því ekki undarlegt, þótt oft hafi komið fyrir að menn og skepnur hafi gengið fram af fjallsbrúnum, og stórslasast, eða dáið, sem oftar mun hafa verið. — Eðlilegt var að mörgum væri órótt af að vita af mönnunum á svona hættulegu ferðalagi, og vita ekkert hvar þá væri að hitta. Það var mikið áliðið dags þegar læknisfrúin talaði við Þor- grímsstaði, spyrja hvort þeir væru komnir. Hjá henni var ekk- ert að heyra nema öryggi um að þetta ferðalag hefði góðan endi, það var svo aðdáanleg stilling, ekki eitt einasta ásökun- arorð til eiginmannsins fyrir að hafa farið þessa ferð ótil- kvaddur. Þetta hafði hressandi áhrif á mig. Jeg fann að með Guðs hjálp gat alt farið vel. Jeg vonaði líka altaf, að það væri fyrir ábendingu frá Guði að læknirinn fór þetta, og þá þurfti ekki að efast um að Guð væri með honum og sæi um að hann sakaði ekki. Veður fór batnandi eftir því sem leið á daginn, seinast sýnd- ist mjer að mundi vera orðið hríðarlaust á fjallinu. — Svo eirðu menn ekki lengur heima, ætluðu að fara eitthvað til að leita, en voru ekki komnir saman, þegar sagt var í símann að ferða- mennirnir væru komnir að Þorgrímsstöðum. Síðar heyrði jeg sagt, að þeir hefðu verið 8 klukkutíma á leið- inni, og læknirinn hefði hrapað æði mikla hæð, en fanndyngjan varði meiðslum. Hef svo ekkert meira um þetta að segja, nema að það var mikilsvert fyrir konuna, hvað læknishjálpin kom fljótt. Guðbjörg Jónasdóttir, Sellandi á Vatnsnesi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.