Hlín - 01.01.1959, Blaðsíða 152
150
Hlin
Haraldsdóttir, sem hafði lag á að seiða fram alla þá skemti-
krafta, sem hún vildi, og okkur hafði ekki dottið í hug að við
byggjum yfir. — Hún æfði sænska þjóðdansa, ljet æfa sjónleik
og fjórraddaðan kórsöng. — En þá vandaðist málið með sam-
komuhúsið. Jú, það var notast við tóman saltskúr, gólfið vel
hreinsað, og ekki hugsað um.þó steypan færi dálítið illa með
skósólana. — Skemtunin var vel sótt, þó kalt væri og snjó-
koma, allir skemtu sjer prýðilega.
Leikfimisnámsskeið var á Kaldrananesi um þessar mundir,
var þar kennari Stefán Jónsson. — Sá flokkur sótti okkar
skemtun á Drangsnesi, og við aftur skemtun hjá þeim um
næstu helgi á eftir, og var þá ekki veður látið hamla ferðum. —
Við fórum tveggja tíma gang yfir fjallveg, í blindhríð, að Kald-
rananesi, og skemtun okkur til birtingar næsta dags, þá var
haldið heim, í lítið betra veðri. — Já, margt væri hægt að rifja
upp frá þessum dögum, sem voru fullir af lífi og starfi.
Nú er maður fluttur úr átthögunum, enda orðinn óstarfhæf-
ur, aðeins endurminningar eru eftir frá þessum árum, sem
margar eru góðar, þó eitthvað skyggi á sumar.
Við konur erum þakklátar fyrir öll samtök, sem stuðla að
aukinni mentun kvenna, og styrkja siðferðisþrótt heimilanna.
— Jeg álít, að öll þessi námsskeið hafi verið til mikils gagns í
okkar litla bygðarlagi.
Frá Kvennaskólanum á Laugum í Reykjadal er skrifað á
jólaföstu 1958: — í vetur eiga konur úr hjeraðinu að fá að vera
hjer í orlofi. Það eru 6 þar núna. — Þær verða fimm daga. —
Þær eru afar lukkulegr. — Jeg var þar fyrir handan í gær-
kvöldi, það var skemtikvöld hjá skólanum og aðkomukonur
voru allar svo glaðar og fjörugar og dönsuðu eins og ungar
stúlkur.
Svo verður víst annar flokkur þar núna seinni partinn í
þessum mánuði, og svo eftir nýár eitthvað, eftir því hvað um-
sóknir verða miklar.
Úr Skagafirði um jólaföstubyrjun 1958: — í gær var hjer 12
stiga hiti, og stóðst jeg ekki mátið, og hleypti kúnum út!
Þær brugðu sjer á leik sem sumar væri.
Úr Stykkishólmi er skrifað veturinn 1958: — Við erum að
basla við að prýða eitthvað garðinn okkar, en það er öll vinna
og allir hlutir til hans ósköp dýrt, svo árangurinn þar er ekki
eins góður og ætti að vera, þó lögðum við í hann 8000 kr. í fyrra
fyrir utan sjálfboðavinnu. — Svo erum við að reyna að leggja
dálítið til Björgunarsjóðs Breiðafjarðar, eða um 10 þsúund kr.,
nú tvö undanfarin ár. — Þá höfum við líka blessaða kirkjuna