Morgunn - 01.06.1924, Blaðsíða 23
MORGUNN
17
Félagið hefur enga sameiginlega játningu aðra en þá, að
þessi nefndu fyrirbrigði séu rannsóknar verð.
í nokkur ár fjölluðu skýrslur félagsins aðallega um til-
raunir með dáleiðslu og hugsanaflutning. Bn með rannsóknun-
um á frú Piper hefst nýtt skeið í sögu félagsins.
Pyrstur vísindamanna uppgötvaði miðilsgáfu hennar pró-
fessor William James viö Harvard-háskólann í Bandaríkjun-
um, árið 1885. Hafði hann nokkra fundi með henni og sann-
færðist um, að hún hefði yfirvenjulega hæfileika. ASalstjórn-
andinn kvaðst viera framliðinn franskur læknir, dr. Phinuit.
Honum gekk erfiðlega að sanna sjálfan sig, en hann hafði
furðulega þekkingu á dánum ættingjum fundarmanna, sem
hann þóttist geta náð í „hinumegin“. Margir hafa haldið, að
hann væri hluti af undirvitund miðilsins, og er það að sumu
leyti líklegt, en gæta veröur þó þess, að sumt bendir á, aS
hann hafi í raun og veru verið framliðinn maður.*) Árið 1887
komst frú Piper undir umsjón dr. Itichard’s Iíodgson’s, og
veturinn 1889—90 var hún á Englandi og hélt fundi í Liver-
pool og Lundúnum með Sir Oliver Lodge, P. W. H. Myers
0. fl. Þeir komust að líkri niðurstöðu og prófessor James.
Frá 1884 til 1891 var stjórnandinn dr. Phinuit, svo sem
áður er sagt, og aðferðin var ósjálfrátt tal. En árið 1892 kom
fram nýr stjórnandi, George Pelham, og um leið fór frú
Piper aö skrifa ósjálfrátt. Það er ekkert efamál, að G. P.
tókst frábærlega vel að sanna sig, og dr. Iíodgson varð alger-
lega sannfærður um andatilgátuna. Hann þekti árangurinn
af meira en fimm hundruð sambandsfundum með frú Piper,
svo að hann liafði eitthvað að moða úr og byggja sannfær-
ingu sína á.
Árið 1896 hófst enn nýtt tímabil í miðilsstarfi frú Pipers.
Nýir stjórnendur komu að, og nefndust þeir sem hinir gömlu
stjómendur Staintons Mósesar, „Imperator“, „Rector“ o. s.
frv. Það er því eölileg ályktun, aS þetta séu sömu mennim-
*) Sjá t. d. Myers: Persónuleiki mnnnsins, II, 163 A.
2