Morgunn - 01.06.1924, Síða 67
MORGUNN
61
frá hálsi sínum út úr gættinni rétt að andliti II. N. og hvarf
síðan inn í byrgið.
Athugasemd frá H. N.: Þess skal getið, að frú Arnalds
sagði mér í fundarlok, að hún hefði hækkað ljósið dálítið ofur-
hægt, án þess að tala noklcuð um það, og var því óvenjubjart,
• er „Elísabet“ kom til mín, enda var hún svo björt um miðj-
una, þar sem ljósið komst bezt að henni, að segja mátti um
búning hennar: „Klæði hennar voru ljómandi hvít.“ (Sbr.
Lúk. 9, 29.).
15. fundur.
14. marz.
Alls engin fyrirbrigði gerðust á fundinum. „Mika“ kvart-
aði á eftir undan því við H. N., að hringurinn væri illa saman
■settur, og svona mætti liann ekki vera næst. Ilinn ytri liringur
hefði verið fjölmennari en hann hefði leyft, og hann hefði ekki
lagt til („ikke afgivet“) þann „magnetisma“, sem nauðsyn-
legur væri.
16. fundur.
16. marz.
Boðnir ýmsir menn á fundinn, 26 viðstaddir auk miðils,
•og skyldi reyna að fá flutningafyrirbrigði. En alls engin fyrir-
brigði gerðust, þótt fundurinn stæði töluvert á annan kluklm-
tíma.
17. fundur.
17. marz.
Viðstaddir innri hringurinn og þeir læknarnir Guðm.
'Thoroddsen og Halldór Ilansen, ásamt hæstaréttardómara Páli
Einarssyni, sem nú sátu með í hringnum. Engin fyrirbrigði
igerðust; að eins ávarpaði „Mika“ og „Elísabet“ fundarmenn
(af vörum miðilsins).