Morgunn - 01.06.1924, Síða 68
62
MORGUNN
18. fundur.
19. marz.
Skipuð hafSi verið 5 roanna eftirlitsnefnd eöa skoðunar-
menn. Ilöfðu þeir átt fund með sér kl. 5 e. h. til að ræða hvern-
ig haga skyldi eftirlitinu.
Þeir komu kl. 714 e- k. og notuðu % stundar til þess að;
rannsaka fundarstofuna og miðilinn á undan tilraunafund-
intun. (Sjá skýrslu þeirra um þá rannsókn).
Sjálfur fundurinn byrjaði kl. 8. Haft var rautt ljós sem
áður, svo bjart að fundarmenn gátu greint vel hver annan í
öllum hringnum.
Yiðstaddir: Innri hringurinn (12 manns) og að auki bætt
í hringinn læknunum Guðm. Thoroddsen og Halldóri Hansen
og hæstaréttardómara Páli Einarssyni eins og á síðasta fundi.
Fundarmenn sátu í þessari röS, frá vinstri til hægri hand-
ar: Gíslína Kvaran, Einar II. Kvaran, Guðm. Thoroddsen,
Isleifur Jónsson, Vilborg Guðnadóttir, Einar E. Kvaran, Snæ-
björn Amljótsson, Gunnar E. Kvaran, Jakob J. Smári, Hóbn-
fríður Knudsen, Páll Einarsson, Yilh. Knudsen, Halldór Han-
sen, Aðalbjörg Sigurðardóttir, Haraldur Níelsson.
Vanaleg fundar byrjun.
Bæði „Mika“ og „Elísabet" ávörpuðu fundarmenn, af
vörum miðilsins.
Eftir að sungið hafði verið all-lengi, opnaðist tjaldgættin
og hvítar slæður sáust í henni — nokkuð miklar. Kétt á eftir-
sást vera koma í gœttina; liélt iiún hyrgistjöldunum saman
fvrir brjóstinu, svo að höfuðið sást að ofan, og að neðan slæö-
ur, eins og frá mitti og niður úr; svona sáu þeir þetta, sem
vinstra megin sátu í hringnum og beint fyrir framan (af eftir-
litsnefndinni þeir Einar H. Kvaran og Guðm. Tlioroddsen).
Jakob Jóh. Smári sá þetta, en Páll Einarsson sá að eins eitt-
hvað hvítt, sjá skýrslu hans; hinir, sem utar sátu, sáu þetta
ekki; — eftir það hvarf veran.
Ntest kom hvít vera í tjaldgættina og sást nú öll, en þó
svo ógreinilega að fellingar á slæðum og búningssnið varð eigi