Morgunn - 01.06.1924, Qupperneq 79
MORGUNN
73:
hafi þeir notað hné miðilsins til þess. Frú Aðalbjörg segir þá
strax, að hún hafi orðið vör við þá hreyfing á hné miðilsins.
Þau £rú Aðalbjörg og Sig. Nordal fundu þá bœöi eins og miS-
illinn væri hafinn á loft og fanst þeim þau ætla að missa hann
upp úr höndunum á sér. En þau mistu þó hvorugt tökin á hon-
um, en urðu að lyftast nokkuð upp í sætunum. Sig Nordal
fanst fætur miðilsins vera yfir höfðinu á sér, en frú Aðalbjörg
fanst höfuð miðilsins lcoma á milli höfuðs síns og höfuðs L.
Kaabers, en þó frekara ofan við þau.
Sig. Nordal tekur þetta fram: „Mér fanst það og mjög
einkennilegt, að miðillinn komst aftur niöur í stólinn úr þess-
ari loftför, án þess að reka sig nokkurstaðar á, hvorki á borðið,
stólbakið, hljóðfærið, né oldmr, sem hjá honum sátum, og var
þetta þó mjög þröngt og í kolamyrkri.“ Af þessu varð enginn-
hávaði og urðu ekki aðrir varir við þetta en þau tvö, sem miðl-
inum héldu, nema hvað frú Kvaran, L. Kaaber og Gunnar-
Kvaran uröu vör við, að þau teygðu sig upp á sætinu.
Enn talaÖi „Pedro“ af vönun miðilsins og kvaðst þá ekki'
geta fengið fleiri „kraftbylgjur“ úr miðlinum í kvöld, og bað
að syngja eitt vers, áður en fundinum væri slitið.
Þegar kveikt var, sást, að dúkur, sem legið hafði á hljóð-
færinu, undir hlutunum, er þar höfðu verið settir, var á miðju
borðinu; hafði hann verið breiddur yfir hlutina og honum
eins og kipt sam'an til miðjunnar.
21. fundur.
4. apríl.
Skyldi reyna flutningafyrirbrigði. Þau héldu höndum
miðilsins hvort sínu megin Einar H. Kvaran vinstra megin og
frú Regína Thoroddsen hægra megin.
Var reynt heila klukkustund, en ekkert gerðist.
Þá var reynt að breyta til í hringnum, sem var hafður-
tvöfaldur.
Hélt nú frú Ellen Sveinsson (kona Þ. Sv. á Kleppi) miðl-
inum hægra megin, en Ilar. Níelsson vinstra megin.