Morgunn - 01.06.1924, Blaðsíða 84
78
M 0 R G U N N
Þetta olli því, að sauragnir, sem æfinlega koma með útfrym-
inu, þegar þessi leiSin er farin, urðu eftir á innhliðinni á fund-
arbúningi miðilsins. Líka leiddi það af því, að fundinum var
slitið svona, að okkur veitti mjög örðugt að koma miðlintun
aftur til meðvitundar; það tók um röska klukkustund. Meðan
rniöillinn var þannig meðvitundarlaus, liafði Dr. Scharffen-
berg alt af verið inni í byrginu við lilið miðilsins, og þar sem
hinir fundarmennirnir, sem áttu að hafa eftirlitið á eftir
fundinum, höfðu ekki tíma til að bíða, þangað til miðillinn
fengi meðvitundina aftur, af því að þeir þurftu að fara heim
til miðdegisverðar eða til þess að iðka íþróttir, þá klæddu
þeir miðilinn meðvitundarlausan úr fundarbúningnum og'
blæjan, sem var saumuð yfir höfuð miðilsins við búninginn,
rifnaði, þegar þeir voru að taka lmna af honum. Meö því að
blæjan var alt af föst við fundarbúninginn, var henni smeygt
upp yfir höfuð miðilsins, og af því að engin teygja var f
henni, slitnuðu nokkurir möskvar og þá myndaðist gatið, sem
fundarmenn héldu síðar að útfrymið hefði komið út um.
Þegar miðillinn fékk meðvitundina seinna, voru ekki aðrir
orðnir eftir í fundarherberginu en prófessor Jæger, prófessor-
Heegaard og Dr. Scharffenberg. Jafnskjótt sem þeir .höfðu
afklætt miðilinn fundarbúningnum og fundið sauragnirnar,
rannsökuðu þeir endaþarm miðilsins, og komust að því, að>
hann var tómur.“
Annað alþjóðaþing öálarrann-
sóknamanna.
Það vnr háð síðastJiðið sumar í höfuðborg Póllands, dag-
ana 29. ágúst til 5. september. Ráðgert hafði verið, að París;
yrði fundarstaðurinn. En hætt hafði verið við þá fyrirætlun,
og lágu til þess ýmsar orsakir. Sú veigamesta var vafalaust ríg-